Tölvan hefur tekið við af lúgum skattstjóra
mbl.is/Golli
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is
Frestur til að skila skattframtölum einstaklinga rann út á miðnætti síðastliðnu. Fyrr á árum var örtröð við skattstofur landsins þegar fólk var að skila framtölum á síðustu stundu. Það er liðin tíð og má segja að tölvuver ríkisskattstjóra hafi tekið við af bréfalúgum skattstjóranna, því nær 95% framteljenda skila nú framtölum sínum rafrænt.
Að sögn Karls Ó. Magnússonar, deildarstjóra álagningardeildar RSK, hefur hlutfall þeirra sem skila rafrænt vaxið hröðum skrefum undanfarin ár. Á skattskrá að þessu sinni eru um 266 þúsund manns en framtöl eru færri, því hjón telja fram saman. Reynslan er sú, að um 7% af þessum hópi skila ekki framtölum, og eru skattar áætlaðir á þennan hóp.
Um miðjan dag í gær voru um 80 þúsund framteljendur búnir að skila inn framtölum sínum, bæði einstaklingar og hjón. Karl segir að gríðarlega margir hafi skilað framtölum um helgina, eins og ætíð gerist þegar fresturinn er að renna út. Nefndi Karl sem dæmi, að frá klukkan 17 á sunnudag til jafnlengdar í gær hafi um 15 þúsund framtöl borist.
Hann segir að einn og einn framteljandi kjósi að skila framtalinu á pappír eins og áður tíðkaðist enda hafi ekki allir landsmenn aðgang að tölvum.
Nú eru innistæður í bönkum og öðrum fjármálastofnunum forritaðar í framtölin í fyrsta sinn. Það þýðir að margir framteljendur þurfa ekki að gera annað en renna yfir framtalið, staðfesta að upplýsingarnar séu réttar, og senda það síðan til ríkisskattstjóra. Karl kveðst reikna með að tugþúsundir framteljenda þurfi ekki að leggja meiri vinnu í framtalsgerðina en þetta.
Skattstofur eru þegar byrjaðar að vinna í framtölum sem borist hafa.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 27. mars 2008, Innlent Um 77.000 netframtöl
- Laugardagur, 10. apríl 2010, Innlent Framtalsskil ívið betri en í fyrra
- Miðvikudagur, 4. febrúar 2009, Innlent Þurfa bara að staðfesta framtalið
- Þriðjudagur, 27. október 2009, Innlent 10 þúsund einkahlutafélög skulduðu skatt
- Þriðjudagur, 28. júlí 2009, Innlent Álagning skatta 221,3 milljarðar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































