Vona að fleiri greiði hækkanir
Verkalýðsfélag Vestfirðinga vonar að fleiri fyrirtæki fylgi fordæmi HB Granda, Brims og fleiri fyrirtækja og greiði áður umsamdar launahækkanir. Félagið skorar á atvinnurekendur að láta frestaðar launahækkanir koma til framkvæmda og sýna þannig í verki hversu mikils virði framlag starfsmanna er í rekstri fyrirtækjanna.
Eins og fram hefur komið hafa HB Grandi, Brim, Hrognavinnsla Vignir G. Jónssonar á Akureyri og fleiri ákveðið að greiða umsamdar launahækkanir, þrátt fyrir samkomulag samninganefnda ASÍ og SA um frestun kjarasamninga fram á sumar. Hækkanirnar gilda frá 1. mars eins og um hafði verið samið.
„Með þessum hækkunum var stigið mikilvægt skref í rétta átt að bættum kjörum taxtalaunafólks hjá fyrirtækinu. Það er von okkar sem að þessum málum koma að önnur fyrirtæki sem standa vel fylgi í kjölfarið og greiði áður frestaðar launahækkanir frá 1.mars,“ segir á vef Verkalýðsfélags Vestfirðinga.
Þá kemur fram að stjórn félagsins sendi þann 5. mars sl. frá sér hvatningu til eigenda og stjórnenda fyrirtækja að þau sem betur stæðu ættu að sjá sóma sinn í því að greiða út umsamdar taxtahækkanir og tryggja að enginn taxti væri undir grunnatvinnuleysisbótum. Lágmarkstekjutrygging fyrir fullt starf er nú 157.000 krónur á mánuði og þeir sem eru hlutaráðnir eiga hlutfallslegan rétt til þess sama.
Verkalýðsfélag Vestfirðinga segir að á Vestfjörðum séu nokkur stór og öflug fyrirtæki sem ættu að hafa góða burði til að standa við taxtahækkanir til starfsmanna sinna.
„Það ætti að vera keppikefli fyrir þessi fyrirtæki að láta starfsfólkið njóta meiri ávinnings af þeim verðmætum sem það hefur í gegnum tíðina skapað fyrirtækjunum með vinnuframlagi sínu. Í ljósi þessa skorar Verkalýðsfélag Vestfirðinga á atvinnurekendur að láta frestaðar launahækkanir koma til framkvæmda og sýna þannig í verki hversu mikils virði framlag starfsmanna er í rekstri fyrirtækjanna.“
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. mars 2009, Innlent Starfsfólkið fær 13.500 krónur
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Vill rifta samkomulagi um frestun samninga
- Fimmtudagur, 26. mars 2009, Innlent Þúsund verkamenn hafa fengið launahækkanir
- Fimmtudagur, 12. mars 2009, Innlent Arðgreiðsla móðgun við fiskvinnslufólk
- Mánudagur, 23. mars 2009, Innlent Fleiri greiða umsamdar launahækkanir
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































