Flogið 4 sinnum í viku til Seattle

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. stækka

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Icelandair, dótturfélag Icelandair Group, mun hefja beint áætlunarflug fjórum sinnum í viku milli Íslands og Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna þann 22. júlí næstkomandi.

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir í tilkynningu að við brotthvarf SAS af markaðinum milli Skandinavíu og Seattle í sumar myndast tækifæri fyrir Icelandair. „Því vegna staðsetningar landsins getum við nýtt Boeing 757 þotur í flugið, en þær eru mun hagkvæmari en þær breiðþotur sem jafnan fljúga milli Seattle og Evrópu.

Með millilendingu hér á landi dreifast farþegar til og frá fjölmörgum Evrópuborgum, líkt og í öðru tengiflugi félagsins. Samkeppnishæfni Icelandair á leiðinni milli Seattle og Evrópu er því góð og við getum boðið 3-4 klst. styttri flugtíma en aðrir geta frá höfuðborgum Norðurlandanna og fleiri stöðum.

Jafnframt erum við í samstarfi við Alaska Airlines, sem er stærsta flugfélagið í Seattle, og því bjóðum við samdægurs góðar áframtengingar til borga eins og Las Vegas, Los Angeles, San Francisco og fleiri. Þetta flug undirstrikar styrk og sveigjanleika Icelandair," að því er segir í tilkynningu.

Farþegarnir í Seattlefluginu koma langflestir af alþjóðamarkaði, samkvæmt tilkynningu. Icelandair gerir fyrir að aðeins um 7% farþeganna verði Íslendingar, en um 93% verða útlendingar - að hluta ferðamenn til Íslands og að hluta fólk á ferð milli heimsálfa.

„Nú eru almennt erfiðir tímar í alþjóðaflugi, en Icelandair hefur áður synt gegn straumnum. Eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 dró mjög úr eftirspurn í flugi, en Icelandair greip tækifæri sem gáfust og á árinu 2002 náði félagið sínum besta rekstrarárangri á meðan önnur flugfélög börðust í bökkum. Icelandair gerði á fyrri hluta síðasta árs umtalsverðar hagræðingaraðgerðir í ljósi versnandi efnahagsástands og við fall íslensku bankanna breytti félagið um áherslur í sölustarfi sínu.

Bættur kostnaðarastrúktúr skapar sóknarfæri og afkoma fyrstu mánuði ársins er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Rekstur Icelandair er því traustur. Það er sérstakt ánægjuefni að þessi ákvörðun kallar á aukna starfskrafta í fluginu og við gerum ráð fyrir að með því skapist beinn starfsvettvangur fyrir allt að eitt hundrað starfsmanna auk þess sem aukin ferðamannastraumur til Íslands skapar mikilvæg störf um allt land," að því er segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Palomino fellihýsi með loftpúðafjöðrun
Til sölu Palomino 4102 árg. 2008 fellihýsi með vandaðri loftpúðafjöðrun , loftdæ...
Plexiform Dugguvogi 11 104 simi 5553344
Póstkassar reyklitaðir, hvítir, svartir og trékassar. Bæklingavasar á borð og á ...
Breyttar felgur 15" 6 gata f. Toyota eða Patrol t.d.
TS 15" breyttar felgur. Þær eru tæplega 18" breiðar með valsaða kanta frá GJJá...
Honda 100 F
Til sölu HONDA 100 F torfæruhjól 2004 mjög lítið notað fjórgeingisvél. Fyrir ald...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...