Fresta hækkun á gjaldskrá
Sérgreinalæknar utan sjúkrahúsa hafa fallist á að 9,8% hækkun á einingaverði fyrir unnin læknisverk, sem átti að koma til framkvæmda 1. apríl, verði frestað og viðræður teknar upp við heilbrigðisráðuneytuð um mögulega endurskoðun á kjörum læknanna.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra í dag. Hann skýrði einnig frá því, að læknar á Vestfjörðum hefðu samþykkt að taka á sig launalækkun með því að vinna bakvaktir án greiðslna. Með þeirri aðgerð næst fram 12 milljóna króna sparnaður.
Á blaðamannafundinum kynnti Ögmundur aðgerðir, sem sjúkrastofnanir á Suðurnesjum, Selfossi og Hafnarfirði ætla að grípa til með það að markmiði að rekstur þessara stofnana verði innan ramma gildandi fjárlaga en að óbreyttu stefndi í umtalsverðan halla á rekstrinum.
Þessar aðgerðir felast að mestu leyti í samstarfi stofnananna sín á milli og við Landspítalann. Það mun leiða til sparnaðar í launakostnaði vegna minni yfirvinnu og vaktaálags. Einnig verður verktakagreiðslum til lækna sagt upp.
Á fjárlögum fyrir árið 2009 er gert ráð fyrir 6,7 milljarða niðurskurði í útgjöldum til heilbrigðismála miðað við síðasta ár. Þar af er Landspítalanum gert að spara 2,7 milljarða króna. Ögmundur sagði, að með breytingum á lyfjakostnaði næðist fram 1,3 milljarða króna hagræðing. Þá verða framlög til öldrunarþjónustu skorin niður um 1,4 milljarða og Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu er gert að spara 240 milljónir á þessu ári.
Fram kom í máli stjórnenda St. Jósefsspítala/Sólvangs, Heilbrigðisttofnunar Suðurnesja og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á fundinum, að á hverri stofnun fyrir sig nemi niðurskurðurinn 100-150 milljónum króna á ársgrundvelli. Um er að ræða 9,5% af fjárlögum ársins í Hafnarfirði, 5,2% á Suðurnesjum og 5,6% á Suðurlandi.
Ögmundur benti á það á fundinum í dag, að 75-80% af útgjöldum til heilbrigðismála sé launakostnaður og aðeins með því að lækka þann útgjaldalið um 5% myndi nást fram 4 milljarða króna sparnaður.
Innlent »
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Tími fyrir móttöku sjúklinga styttist
- Miðvikudagur, 23. desember 2009, Innlent Við höfum ekkert val
- Mánudagur, 16. febrúar 2009, Innlent Lélegt húsnæði - léleg tæki
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Allir vilja verja velferðina
- Miðvikudagur, 2. júlí 2008, Innlent Ný vatnsleiðsla komin til Eyja
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































