Dæmdur fyrir samræði við 14 ára stúlku

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness. mbl.is/ÞÖK

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvítugan karlmann í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot. Maðurinn hafði samræði við 14 ára stúlku í þrígang og í eitt skiptið hafði hún við hann munnmök. Til þess var litið við ákvörðun refsingar að kynlífið var með vilja stúlkunnar og að þau eru enn í samskiptum.

Maðurinn braut gegn stúlkunni í desember árið 2007 og janúar 2008. Stúlkan sem er fædd 1993 var þá fjórtán ára en maðurinn nítján ára.

Farið var fram á 1,5 milljónir króna í miskabætur af hálfu stúlkunnar. Þeirri kröfu var vísað frá dómi þar sem ekki lágu fyrir gögn um andlegar afleiðingar hennar. Maðurinn þarf hins vegar að greiða rúmar 400 þúsund krónur í sakarkostnað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert