Í stórum jarðvarmaverkefnum vestra
Ásgeir Margeirsson forstjóri GGE, Adam Wolfensohn og Ólafur Jóhann Ólafsson, stjórnarformaður GGE. Geysir Green Energy
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
Geysir Green Energy (GGE) er þátttakandi í nokkrum jarðhitaverkefnum í Bandaríkjunum með fyrirtækinu Ram Power Inc., sem sérhæfir sig í verkefnaþróun á sviði jarðvarma. Um er að ræða virkjanir í Kaliforníu og Nevada sem samtals eru yfir 200 MW að stærð. GGE keypti fyrr í vetur 37% hlut í Ram Power fyrir um tíu milljónir dollara, jafnvirði um 1.100 milljóna króna.
Í Nevada eru þrjú verkefni; í Weepah, Pearl Hot Springs og Delcer Butte. Hver þessara jarðvarmavirkjana er með aflþörf upp á um 30 MW. Í Kaliforníu hefur félagið nokkur verkefni í Imperial Valley og er um þessar mundir að ljúka orkusölusamningi vegna 50-100 MW jarðhitaverkefnis þar vestra.
Davíð Stefánsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Geysir Green, segir að Ram Power hafi á að skipa einu reyndasta teymi manna í Bandaríkjunum í jarðhitaþróun. Starfsfólk félagsins var áður meðal stjórnenda eins stærsta jarðhitafyrirtækis heims, Ormat, sem er skráð á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum.
„Þeir ákváðu að ganga til samstarfs við Íslendinga á þessu sviði þar sem við komum með þekkingu í beislun jarðhitans. Þeir koma inn með mikilvæg viðskiptasambönd og þekkingu á jarðhitamarkaðnum í Bandaríkjunum,“ segir Davíð.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 22. ágúst 2009, Innlent Hlutafé fyrir 21 milljarð
- Föstudagur, 6. febrúar 2009, Innlent Enex skipt upp
- Föstudagur, 5. september 2008, Innlent Rannsakað með aðkomu REI
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Innlent Útlendingar eiga meirihluta HS orku
- Miðvikudagur, 25. júní 2008, Innlent Geysir Green Energy sektað
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































