Reisa 95 leiguíbúðir fyrir aldraða í Kópavogi

Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadagsráðs, taka fyrstu skóflustugnuna við Boðaþing. stækka

Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadagsráðs, taka fyrstu skóflustugnuna við Boðaþing.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýjum leiguíbúðum fyrir 60 ára og eldri við Boðaþing í Kópavogi. Þar munu rísa 95 þjónustu- og öryggisíbúðir og munu framkvæmdir við fyrri áfanga, alls 48 íbúðir, hefjast nú í vor.

Boðaþing liggur á mörkum bæjar og sveitar, þar er aðgengi að göngu- og reiðstígum sem liggja að Elliðavatni og í Heiðmörk.

Hönnun og skipulag þjónustu- og öryggisíbúðanna miðast við að aldraðir geti sem lengst haldið eigið heimili og nýtt sér þá þjónustu sem Hrafnista og Kópavogsbær bjóða í Boðaþingi, s.s. fæði, heimilishjálp eða heimahjúkrun.

Innangengt verður úr nýju byggingunni yfir í þjónustumiðstöð aldraðra sem Kópavogsbær er að reisa við Boðaþing 9. Í þjónustumiðstöðinni verður fjölnotasalur með eldhúsi, sundlaug og föndursalur auk þess sem þar verður boðið upp á sjúkraþjálfun hár- og fótsnyrtingu, svo eitthvað sé nefnt.

Auk þess að reka þjónustumiðstöðina mun Hrafnista sjá um rekstur hjúkrunarheimilis sem Kópavogsbær er að reisa við Boðaþing í samvinnu við Ríkið.  

Í tilkynningu segir að íbúðirnar verði vandaðar af allri gerð og skipulag þeirra og innréttingar taki mið af þörfum aldraða. Dyraop verða breið og rennihurðir inn á bað- og svefnherbergi. Sérstakur öryggisdúkur verður á gólfum baðherbergja og öryggishnappur í hverri íbúð. Íbúðunum fylgja svalir sem eru yfirbyggðar en auðvelt er að opna svalirnar nánast að fullu. Í húsinu verða bæði tveggja og þriggja herbergja íbúðir 60 til 90 fermetrar að flatarmáli, eða 88 til 131 fermetri þegar tillit er tekið til sameignar og geymslna.

Lóðin verður fullfrágengin þegar húsið verður tekið í notkun. Áhersla verður lögð á góða útilýsingu, bílastæði verða malbikuð og gangstígar hellulagðir og verða allar helstu gönguleiðir á lóðinni með snjóbræðslu.

Áætlað er að bjóða heildarframkvæmdina út í almennu útboði á næstunni og stefnt er að því að jarðvinna hefjist strax í vor og almennar framkvæmdir um mitt sumar 2009. Húsið verður byggt í tveimur áföngum og verklok fyrsta áfanga, þar sem eru 48 íbúðir, eru áætluð í september/október 2010. Hönnuðir hússins eru THG arkitektar, Verkfræðiþjónustan ehf.  og VSÓ ráðgjöf.

Á morgun eru sjötíu ár liðin frá því að stefnuskrárnefnd Sjómannadagsráðs skilaði tillögum ásamt langri álitsgerð um framtíðaráform samtakanna sem væru að safna fé til stofnunar elli- og hvíldarheimilis fyrir aldraða farmenn og fiskimenn. Þessum tillögum hefur verið vel fylgt eftir sem sjá má þá litið er yfir farinn veg Sjómannadagsráðs.

Fleiri myndir (3)

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
DÍSEL BMW 525 station, sjálfskiptur, nýskoðaður 2013
Til sölu Bmw 525 dísel station nýskráður 4.12.2002, nýskoðaður 2013, sjálfskiptu...
Toyota Carina E til sölu - Skoðaður 2013
Árgerð 1997, Vínrauð, 1800vél, 4 dyra, sjálfskipt. Ekin 219 þús. km. Búið að s...
Bókhaldsstofan ehf, Reykjavíkurv.60 Hfj.
Bókhald, launaútreikn., vsk-uppgjör, stofnun á félögum, ársreikningar, skattfram...
Dekurrófa til sölu - skoða skipti á jeppa
HÚSBÍLL TIL SÖLU skoða skipti á jeppa Fiat Joint 148 árg. 2005 ekinn 40 þús. ...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...