Íslenskt bankakerfi verður ólíkt því gamla

Kaarlo Jännäri kynnir skýrslu sína í dag.
Kaarlo Jännäri kynnir skýrslu sína í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Finninn Kaarlo Jännäri,  sem lagt hefur mat á lagaumhverfi og framkvæmd fjármálaeftirlits á Íslandi, segist gera ráð að íslenskt bankakerfi í framtíðinni verði mjög ólíkt því gamla. Bankarnir verði venjulegir viðskiptabankar á íslenskum innanlandsmarkaði. Þá telur Jännäri, miklar líkur á að Ísland gangi í Evrópusambandið og taka upp evru á næstu fimm árum.

„Um efnahagsumhverfið á Íslandi í framtíðinni er erfitt að spá en ég tel miklar líkur á, að Ísland muni ganga í ESB og taka upp evru á næstu fimm árum eða svo. Það myndi leysa það vandamál, sem er lítill og óstöðugur gjaldmiðill. Áður en að því kemur verður þó að takast á við verðtrygginguna og hlutverk Íbúðalánasjóðs," segir Jännäri í skýrslu sinni, sem hann kynnti í dag.

Jännäri segist telja, að hrun íslenska bankakerfisins megi rekja til fjölda þátta sem hægt væri að lýsa sem blöndu af lökum bankarekstri, rangri stefnu og óheppni. 

Jännäri  var einkum beðinn um að meta regluverk varðandi lausafjárstýringu, lán til tengdra aðila, stórar stöðutökur, krosseignarhald og loks mat á hæfi eigenda og stjórnenda. Samkomulag varð um að matsskýrslan yrði gert opinber og skyldi vera tilbúin í lok mars 2009.

Skýrslan hefst á yfirliti þar sem lýst er stofnanalegri umgjörð reglusetningar og eftirlits á sviði fjármálastarfsemi á Íslandi, síðan er sagt frá kreppunni og aðdraganda hennar, þar næst er lýsing á meginþáttum þeirra sviða sem matið fjallar einkum um, auk þess er hugað að fáeinum atriðum sem skipta máli í tengslum við matið. Í lokakaflanum má finna niðurstöður og helstu ráðleggingar varðandi framtíðina. 

Helstu tillögur Jännäri um framtíðarskipan mála  eru þessar:

  1. Fækka ber ráðuneytum, sem hafa með löggjöf á sviði fjármálamarkaðinn að gera eða tengjast honum með öðrum hætti.
  2. Sameina ber SÍ og FME eða færa stofnanirnar undir sömu yfirstjórn (eins og í Finnland og Írlandi).
  3. Auka ber valdheimildir FME og hvetja ber stofnunina til að beita sér af meiri krafti.
  4. Koma ber upp útlánaskrá (e. national credit registry) hjá FME til að draga úr útlánaáhættu í kerfinu og til að betri yfirsýn fáist yfir stórar áhættuskuldbindingar á landsvísu.
  5. Setja ber strangari reglur umstórar áhættuskuldbindingar, lán til tengdra aðila og hæfi eigenda. Jafnframt ber að herða framkvæmd slíkra reglna, eftir atvikum á grundvelli matskenndra heimilda í samræmi við heilbrigða dómgreind.
  6. Framkvæma ber fleiri vettvangskannanir hjá eftirlitsskyldum aðilum í því skyni að sannreyna veittar upplýsingar vegna eftirlits með fjármálastarfsemi og efni skýrslna, einkum að því er varðar útlánaáhættu, lausafjáráhættu og gjaldeyrisáhættu.
  7. Innstæðutryggingakerfið ber að endurskoða og bæta, í nánu samhengi við þróun mála á þessu sviði innan ESB.
  8. Virk þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á sviði löggjafar og eftirlits með fjármálastarfsemi er mikilvæg, einkum innan EES og ESB.

Kaarlo Jännari  var forstjóri finnska fjármálaeftirlitsins í 11 ár, einn af yfirmönnum finnska seðlabankans um tíma og hefur einnig reynslu af rekstri einkabanka eftir að hafa verið stjórnarformaður og framkvæmdastjóri SKOP-bankans 1991 – 1993, árin sem bankakreppan var hvað dýpst í Finnlandi. Hann hefur m.a. verið Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til ráðgjafar og sinnt nefndar- og stjórnarstörfum fyrir OECD og evrópska seðlabankann. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert