Altarisbríkin komin heim
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is
Saga kirkjuhalds í Reykholti í fimm aldir er nú sýnileg í Reykholtskirkju með gripum úr miðaldakirkjunni. Heim á staðinn er komin 500 ára gömul altarisbrík sem verið hefur í Þjóðminjasafninu í rúma öld. Áður var þangað komin skál í skírnarfontinn, frá svipuðum tíma. Haldið var upp á það við messu í Reykholti sl. sunnudag, á boðunardegi Maríu, að munirnir eru komnir heim og mynda heild.
Altarisbríkur Reykholtskirkju er fyrst getið í úttektargerð frá 1518 þegar Jón Einarsson prestur í Reykholti frá 1510 afhenti séra Ólafi Gilssyni staðinn. Séra Geir Waage í Reykholti segir að báðir þessir prestar séu merkir menn í kirkjusögunni. Jón Einarsson var ráðsmaður hjá Stefáni Jónssyni og Ögmundi Pálssyni, biskupum í Skálholti, og studdi Ögmundur hann til biskupstignar gegn Jóni Arasyni á Hólum. „Hann hefur verið einn af helstu klerkum landsins,“ segir Geir.
Fornleifarannsóknir í Reykholti á undanförnum árum hafa sýnt fram á að miðaldakirkjan er frá 13. öld, frá dögum Snorra Sturlusonar. Þetta var stór kirkja en var orðin hrörleg þegar Ólafur Gilsson tók við henni af Jóni Einarssyni, þá metin á 40 kýrverð. Ólafur sem jafnframt var prófastur á Ströndum nýtti rekaítök Reykholts í Trékyllisvík og lét flytja á staðinn mikið timbur til að gera við kirkjuna. Þegar hann skilaði af sér var kirkjan metin tífalt verðmætari, eða 400 kýrverð.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 9. júní 2008, Innlent Brotist inn á Þingvöllum
- Þriðjudagur, 10. júní 2008, Innlent Íslandspóstur lokar í Reykholti
- Sunnudagur, 3. ágúst 2008, Innlent Erilsamt hjá Brunavörnum Árnessýslu
- Fimmtudagur, 29. október 2009, Innlent Ævisaga Snorra Sturlusonar komin út
- Mánudagur, 3. mars 2008, Innlent Frávísunarkröfu Hannesar hafnað
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































