Grátt leikin eða ónýt, það er efinn

Krónan kemst ekki upp milli ráðherranna á stjórnarheimilinu þótt forsætisráðherra vilji helst kasta henni burt  en fjármálaráðherra telji hana hafða fyrir rangri sök. Það setti hlátur að formönnum stjórnarflokkanna þegar spurt var í lok blaðamannafundar ríkisstjórnarinnar hvort þetta kæmi í veg fyrir áframhaldandi stjórnarsamstarf.

Krónan er grátt leikin en ekki ónýt sagði fjármálaráðherra á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu. Ráðherrann fór fögrum orðum um krónuna sem hann sagði hafða fyrir rangri sök. Hún hefði hvorki tekið viðsjárverðar ákvarðanir í efnahagsmálum né heldur staðið í fararbroddi útrásarinnar.

Forsætisráðherra finnst hinsvegar ekki jafn vænt um krónuna og stefnir að því að taka upp evru, helst sem fyrst. Stjórnarsamtarfið er þó að þeirra sögn alveg skínandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert