ASÍ vill siðareglur um lífeyrissjóði
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur nauðsynlegt að settar verði siðareglur um fjárfestingar lífeyrissjóða og fyrirmyndareglur um daglega starfsemi þeirra, þ.m.t. starfskjör, gjafir, risnu og ferðalög, og þær verði kynntar fyrir ársfundi lífeyrissjóðanna.
Í framhaldi af samþykktum aukaársfundar ASÍ í síðustu viku og í ljósi þeirrar umræðu og gagnrýni sem verið hefur í fjölmiðlum undanfarið vill miðstjórn ASÍ árétta að hún lítur á það sem mikilvægt verkefni verkalýðshreyfingarinnar að taka af mikilli festu og ábyrgð á þeim álitamálum og gagnrýni sem upp hefur komið.
Þetta vill miðstjórn ASÍ gera með eftirfarandi hætti:
- Óska eftir því að Fjármálaeftirlitið kanni sérstaklega hvort lífeyrissjóðir hafi á undanförnum árum starfað eftir lögum, samþykktum og fjárfestingarstefnu. Jafnframt verði sérstök úttekt gerð á uppgjöri sjóðanna vegna ársins 2008 með hliðsjón af áhrifum fjármálakreppunnar á verðmæti eigna.
- Lífeyrisnefnd ASÍ og skipulags- og starfsháttarnefnd ASÍ setji fram eins fljótt og verða má tillögur að siðareglum um fjárfestingar sjóðanna og fyrirmyndareglur um daglega starfsemi þeirra, þ.m.t. starfskjör, gjafir, risnu og ferðalög, og þær verði kynntar fyrir ársfundi lífeyrissjóðanna.
- Vegna þess sem liðið er beinir miðstjórn ASÍ því til fulltrúa launafólks í stjórnum lífeyrissjóðanna að óskað verði þegar í stað eftir því að innri endurskoðendur lífeyrissjóðanna geri sérstaka úttekt á starfsemi þeirra undanfarin ár. Mikilvægt er í þessari skoðun að fá fram skýrar upplýsingar um þátttöku í ferðum eða móttöku á gjöfum. Sérstaklega verði óskað eftir því að ferðir verði flokkaðar eftir því hvort um hafi verið að ræða skemmtiferðir í boði annarra, hreinar fagferðir í boði annarra , embættisferðir á vegum sjóðsins eða ferðir sem sameina einhver eða öll ofangreind einkenni.
Miðstjórn ASÍ telur mikilvægt að ofangreindar upplýsingar verði birtar og gerðar aðgengilegar sjóðfélögum og almenningi.
Í tilkynningu ASÍ segir að miðstjórnin harmi þann fréttaflutning og framsetningu sem fjölmiðlar hafi kosið að nota í umfjöllun um málefni lífeyrissjóðanna, þar sem stjórnir og starfsmenn þeirra séu ómaklega ásökuð um refsiverða framsetningu ársreikninga og réttinda sjóðsfélaga.
|
|
Ályktun miðstjórnar ASÍ um málefni lífeyrissjóða |
Bloggað um fréttina
-
Jakob Falur Kristinsson ASÍ -
Haraldur Haraldsson ASÍ vill siðareglur um lífeyrissjóði/Kannski ekki sama og við sem ... -
Margrét Sigurðardóttir Vissuð þið þetta ekki? -
Kolbrún Hilmars Ekki vill ASÍ missa þennan spón úr aski sínum
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Bann á boðsferðir hjá lífeyrissjóðunum
- Föstudagur, 3. apríl 2009, Innlent ASÍ vill að lífeyrissjóðir fái siðareglur
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Hluti stjórnar VR vill breytingar á stjórnarkjöri
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Launafólk stýri sínum sjóðum
- Miðvikudagur, 25. mars 2009, Innlent Álitshnekkir lífeyrissjóða
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































