Mikill verðmunur á páskaeggjum
Á 14 af 28 páskaeggjum var yfir 40% verðmunur á hæsta og lægsta verði og í fimm tilvikum var yfir 30% verðmunur.
Tæplega 53% verðmunur var á páskaeggi nr. 4 (340 g) frá Nóa-Síríusi sem var ódýrast í Krónunni, kr. 909, og dýrast í Ellefu-ellefu, kr. 1.389.
Góu-páskaegg nr. 4 (325 g) var ódýrast í Bónus, kr. 785, en dýrast í Hagkaupum, kr. 1.199, sem er tæplega 53% verðmunur.
Verðið oftast lægst í Bónus
Bónus Holtagörðum var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í 19 tilvikum af 28. Samkaup-Úrval var oftast með hæsta verðið eða í átta tilvikum.Flest eggin í könnuninni voru fáanleg í verslun Kaskó eða 26 af 28. Í Fjarðarkaupum voru 25 tegundir fáanlegar. Fæst egg voru fáanleg í Tíu-ellefu, 10 talsins, og í Samkaupum Strax voru 13 tegundir fáanlegar.
Freyja býður 300 g páskaegg án sykurs og án mjólkur. Þessi egg voru ódýrust í Bónus, kr. 1.198, en dýrust í Samkaupum-Úrvali og Hagkaupum á kr. 1.699. Verðmunurinn er 42%.
Verðkönnunin tók til algengra páskaeggja frá íslenskum framleiðendum sem fengust að jafnaði í flestum verslunum. Til eru fleiri tegundir af páskaeggjum á markaðnum sem verðkönnunin tekur ekki yfir, þar með talin páskaegg sem framleidd eru sérstaklega fyrir ákveðnar verslanir.
Könnunin var gerð í eftirfarandi verslunum: Bónus Holtagörðum 59, Krónunni Granda, Kaskó Vesturbergi 76, Nettó í Mjódd, Fjarðarkaupum Hólshrauni 1b Hf., Hagkaupum Skeifunni 15, Nóatúni Nóatúni 17, Samkaupum-Úrvali Miðvangi 41 Hf., Gripið, Tíu ellefu Borgartúni 26, Ellefu-ellefu Skúlagötu 13 og Samkaupum-Strax Stigahlíð 45-47.
Aðeins var um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Það munar um minna. -
Steinn E. Sigurðarson Hvar finn ég niðurstöðurnar?
Innlent »
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 4. apríl 2009, Innlent Verðkönnun ASÍ: 102% verðmunur á lambalæri
- Föstudagur, 28. mars 2008, Innlent Bónus með lægsta verð og Nóatún hæsta
- Föstudagur, 26. mars 2010, Innlent Mikill verðmunur á páskaeggjum
- Föstudagur, 20. febrúar 2009, Innlent 348% verðmunur á matvöru
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Verðmunur milli verslana minnkar
-
Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin




































