Sniglarnir 25 ára

Ungir áhugamenn um bifhjól
Ungir áhugamenn um bifhjól mbl.is/Golli

Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, standa á tímamótum því þau eru 25 ára í dag. Í tilefni afmælisins var í dag boðið upp á köku og kaffi í Kringlunni auk þess sem nokkur hjól voru til sýnis. Í kvöld er boðið upp á vöfflur og kaffi í félagsheimili Snigla.

Sniglar voru stofnaðir sem hjólaklúbbur og var markmiðið að sameina hjólafólk og hjóla saman, að því er segir á heimasíðu samtakanna. Fljótlega fóru sniglar að láta forvarnir og hagsmunamál til sín taka.

Á morgun kl. 18 stendur umferðarnefnd Snigla fyrir opnum fundi  að Langholtsvegi 111 um stefnur og strauma í þessum málum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert