Unnið fram eftir á Alþingi

stækka

mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is

Þingmenn spýttu í lófana í gærmorgun og samþykktu að halda áfram umræðum og atkvæðagreiðslum fram yfir miðnætti til að flýta fyrir þingstörfum. Þingfundur stóð til klukkan 00:16 en þingið afgreiddi hert gjaldeyrislög skömmu fyrir miðnætti.

Nokkur frumvörp potuðust áfram, bæði í nefndum og í umræðum en eftir að frumvarp um hert gjaldeyrishöft var lagt fram var dagskrá þingsins að öðru leyti frestað, þ. á m. umræðu um frumvarp um greiðsluaðlögun húsnæðislána. Mikil óvissa er um hvenær þingstörfum lýkur og veltur mikið á því hvaða stefnu umræður um breytingar á stjórnarskránni taka á næstu dögum.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í síðustu viku að 38 mál þyrftu að komast í gegnum Alþingi fyrir þinglok, þar af væru 22 sem þyrftu nauðsynlega að vera samþykkt. Þegar rennt er yfir þennan lista sést að mörg af „nauðsynlegu“ málunum hafa þegar verið samþykkt og önnur eru komin á góðan rekspöl, þ.e. í 2. eða 3. umræðu á þinginu.

Umdeilt stjórnarskrármál

Engu að síður ríkir mikil óvissa um hvenær þingstörfum getur lokið og þingmenn geta tekið til við eiginlega kosningabaráttu. Mikið veltur á hvort frumvarp um breytingar á stjórnarskrá, m.a. um stjórnlagaþing og um ákvæði um að auðlindir verði í þjóðareigu, verður afgreitt með sátt út úr stjórnarskrárnefnd. Eins og kunnugt er hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins miklar athugasemdir við frumvarpið. Þeir gagnrýna það efnislega en andstaðan byggist þó ekki síst á því að frumvarpið sé illa undirbúið og að þingið verði að fá mun meiri tíma til að fjalla um svo mikilvægt málefni. Þeir eru þó tilbúnir til að samþykkja tilteknar breytingar á 79. grein, sem kveður á um hvaða aðferðum skal beita við breytingar á stjórnarskránni. Ákveði meirihluti nefndarinnar að afgreiða málið úr nefnd, gegn harðri andspyrnu sjálfstæðismanna, gæti slíkt dregið starf þingsins verulega á langinn.

Framsóknarmenn leggja mikla áherslu á að samþykkt verði að efna til stjórnlagaþings. Siv Friðleifsdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, sagðist í gær binda vonir við að samkomulag næðist um stjórnarskrármálið. Á þessu stigi væri þó erfitt að spá fyrir um framvindu málsins. Hugsanlega gæti þingstörfum þó lokið „öðru hvorum megin við helgi“.

Gætu haldið áfram til páska

Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, sagði að ef stjórnarflokkarnir hefðu áhuga á því, væri hægt að ljúka þingstörfum á föstudag eða laugardag, að því gefnu að frumvarpið um breytingar á stjórnarskrá yrði lagt til hliðar. Stjórnarflokkarnir virtust á hinn bóginn engan áhuga hafa á því. Þá gagnrýndi hún stjórnina fyrir að leggja ekki fram þingmál sem tæki á málefnum bankanna og fleiri mikilvægum efnahagsmálum.

Jón Bjarnason, þingflokksformaður Vinstri-grænna, vildi engu spá um þinglok. Þingstörfin hefðu algjöran forgang í þessu ástandi sem hefði skapast í þjóðfélaginu og ef þurfa þætti mætti halda áfram fram yfir páska.

Lúðvík Bergvinsson, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, sagði að sér kæmi ekki á óvart þótt þingstörf myndu halda áfram talsvert fram í næstu viku.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Landskiki óskast
Óska eftir 2-20 ha landskika við sjó,á eða vatn með leyfi fyrir 2 heilsárshús í ...
Ljósavélar í báta og skip 10 -1000 kw
Útvegum allar gerðir af ljósavélum, Cummins, Perkins, fl,. teg Stamford , leory ...
CAVALIER HVOLPAR
Cavalier hvolpar til sölu. Erum með yndislega cavalier hvolpa til sölu. Kíktu á ...
Galeon 610
Mjög vel með farinn 5.9 m með Yamaha F150 (150hp) og kerru til sölu. 5.9 mil...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...