Fréttaskýring: Staða lánveitenda getur ráðið úrslitum

Morgunblaðið Eftir Magnús Halldórsson - magnush@mbl.is

Eitt af vandamálum Landsvirkjunar í heimskreppunni er bág staða lánveitenda fyrirtækisins. Þar eru stærstir heimsþekktir bankar, þar á meðal breski bankinn Barclays, hinn japanski Sumitomo, SEB frá Svíþjóð, hinn þýski Deutsche Bank, bandarísku bankarnir JP Morgan og Citibank, og svo hinn franski Societe General. Þeir eru allir laskaðir eftir þær hremmingar sem einkennt hafa fjármálamarkaði frá sumarmánuðum 2007, en þó helst frá því að lánamarkaðir lögðust saman á heimsvísu eftir gjaldþrot fjárfestingarbankans Lehman Brothers, 15. september í fyrra.

Sterk á hefðbundna kvarða

Lausafjárstaða Landsvirkjunar er sterk í samanburði við önnur fyrirtæki á Íslandi. Fyrirtækið hefur aðgang að lausafé til ársloka 2010, svo framarlega sem það fer ekki út í neinar framkvæmdir sem kalla á útgjöld. Algeng viðmiðun í þessum efnum er að fyrirtæki hafi trygga lausafjárstöðu til sex mánaða.

En þrátt fyrir að lausafjárstaða Landsvirkjunar sé sterk, á hefðbundna mælikvarða, blasa við vandamál taki lánamarkaðir ekki að breytast á næstu mánuðum.

Staða lánveitenda fyrirtækisins getur þar skipt töluvert miklu máli. Þangað þarf fyrirtækið að sækja lán til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar og starfað eftir áætlunum fram í tímann.

Fyrrnefndir bankar hafa margir hverjir þurft að reiða sig á beina hjálp frá stjórnvöldum í löndum þar sem þeir starfa, eða fengið nauðsynlega aðstoð frá seðlabönkum.

Þetta hefur gert það að verkum að bankar eru í slæmri stöðu til að lána. Í raun má segja að margir bankar séu enn að berjast fyrir lífi sínu.

Nokkuð er því í að þeir geti farið að stunda eðlilega lánastarfsemi og sinnt viðskiptavinum sínum, stórum sem smáum, með hefðbundnum hætti. „Í raun er vandamálið við hinn alþjóðalega efnahag nú um stundir ekki það að bankar séu að taka of mikla áhættu, heldur eru þeir þvert á móti að taka of litla áhættu [...] Banka og aðrar fjármálastofnanir skortir bakland til að fá traust til að lána,“ sagði Robert Peston, viðskiptaritstjóri breska ríkisútvarpsins BBC, á bloggsíðu sinni í gær. Forsvarsmenn Landsvirkjunar hafa haldið góðu sambandi við lánveitendur síðan bankakerfið hér á landi hrundi og lánshæfismat íslenska ríkisins, og þar með Landsvirkjunar, var lækkað. Meðal annars hafa starfsmenn fyrirtækisins fundað með fyrrnefndum bönkum og rætt stöðuna, eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu.

Vísbendingar um fjármögnunarmöguleika Landsvirkjunar eins og mál standa nú má meðal annars ráða af álagi á skuldabréf fyrirtækisins. Að sögn Agnars Tómasar Möller, hjá GAM Management, hefur vaxtaálagið farið vaxandi að undanförnu sem þýðir minnkandi tiltrú markaðarins á fyrirtækinu. „Við höfum séð nokkurt framboð að undanförnu á skuldabréfum útgefnum af Landsvirkjun í erlendri mynt og vaxtaálag þeirra hefur farið vaxandi. Í vikunni sáum við til að mynda bréf með gjalddaga eftir 5 til 17 ár sem voru með um 18 prósenta vaxtaálagi, sem samsvarar því að hægt sé að kaupa bréfið á 61 prósents afslætti annars vegar og 88 prósenta hins vegar vegar, miðað við höfuðstól bréfanna.“

Tekjurnar minnka

Vegna lækkandi álverðs í heiminum undanfarin misseri, um 70 prósent á sjö til átta mánuðum, hafa tekjur Landsvirkjunar af raforkusölu til álvera minnkað. Orkusölusamningarnir eru tengdir verði áls og því hefur breyting á álverðinu bein áhrif á tekjurnar.

Þegar álverð fór sem hæst í fyrra, upp í um 3.300 dollara á tonnið, gerði fyrirtækið framvirka samninga til að tryggja fyrirtækið fyrir verðlækkun. Þessir samningar draga úr áhrifum af verðlækkuninni. Þrátt fyrir það var tap Landsvirkjunar í fyrra um 40 milljarðar, en stóran hluta þess má þó rekja til gangvirðisbreytinga á innbyggðum afleiðum. Tapið virðist því meira en það í raun er þar sem afleiðurnar eru ekki innleystar nema að hluta. Þá hefur lágt vaxtastig bandaríska seðlabankans einnig dregið úr fjármagnskostnaði fyrirtækisins, en stýrivextir þar eru nú 0,25 prósent. Til samanburðar eru þeir 17 prósent hér á landi en víðast hvar á bilinu 0-4 prósent.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.

Sé ekki í samkeppni við þingið

18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BÍLASTÆÐAMÁLUN, MALBIKSVIÐGERÐIR
Bílastæðamálun malbiksviðgerðir og véls...
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes- og Gra...
OPEL ASTRA ENJOY
Opel Astra Enjoy Nýskr. 4/2007, ekinn 93 þ. km, bensín, 5 g...
Sumarhúsasmíði Sveins.
Íslensk hágæða framleiðsla. Löggiltur húsasmíðameistari. Smíðum eftir þínum teik...
 
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...