Vilja að stjórnvöld beiti Dyflinar-ákvæði

Dómsmálaráðherra tók á móti hælisleitendum og stuðningsmönnum þeirra í síðasta mánuði stækka

Dómsmálaráðherra tók á móti hælisleitendum og stuðningsmönnum þeirra í síðasta mánuði mbl.is/Rax

Íslandsdeild Amnesty International hefur sent dómsmálaráðherra, Rögnu Árnadóttur, bréf þar stjórnvöld eru hvött  til að endurskoða ákvörðun um að taka ekki til efnislegrar meðferðar hælisbeiðnir fimm hælisleitenda.

Í bréfinu eru yfirvöld hvött til að  nýta ákvæði Dyflinnar-samkomulagsins sem heimila að umfjöllun um hælisbeiðnir fari fram hér á landi.  Amnesty International telur að aðbúnaður hælisleitenda í Grikklandi og möguleikar á réttlátri málsmeðferð sé mjög ábótavant.

„Háttvirti dómsmálaráðherra
 
Í fjórtándu grein Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna segir: „Rétt skal mönnum vera að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum.“  Réttur flóttamanna er tryggður í fjölmörgum alþjóðasamningum og er þeirra mikilvægastur flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1951.
 
Ríkisstjórnir Evrópuríkja hafa á undanförnum árum þróað með sér sameiginlega stefnu í málefnum flóttamanna og gert ýmsar ráðstafanir sem takmarka aðgang flóttafólks að yfirráðasvæði þeirra. Amnesty International hefur ítrekað bent á að hin evrópska samvinna í málefnum flóttamanna, þ.m.t. Dyflinnar-samkomulagið, hefur leitt til þess að almenn viðmið framkvæmdaráðs Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eru ekki í heiðri höfð. Samtökin hafa hvatt ríkisstjórnir til að tryggja að aðgerðir þeirra og stefna grafi ekki undan þeirri vernd sem flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna og aðrir alþjóðlegir mannréttindasamningar veita.
 
Það er mikið áhyggjuefni að íslensk yfirvöld taka æ færri hælisumsóknir til efnislegrar meðferðar og senda þess í stað hælisleitendur til þriðja lands. Á árinu 2008 var 28 hælisleitendum birt ákvörðun Útlendingastofnunar um endursendingu á grundvelli Dyflinnar-samkomulagsins.
 
Íslensk yfirvöld hafa nú ákveðið að taka ekki til efnislegrar meðferðar hælisbeiðnir fimm hælisleitenda. Tveir þeirra koma frá Írak, einn frá Albaníu og tveir frá Afganistan. Á grundvelli Dyflinnar-samkomulagsins er gert ráð fyrir að þessir hælisleitendur verði sendir til Grikklands og mál þeirra tekin til umfjöllunar þar.  Fjölmargar stofnanir og samtök leggjast gegn því að hælisleitendur séu sendir til Grikklands, þ.á.m. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Amnesty International og ECRE (European Council on Refugees and Exiles). Andstaða þeirra byggir á rannsóknum sem leitt hafa í ljós slæman aðbúnað hælisleitenda í Grikklandi og skerta möguleika á réttlátri meðferð sinna mála.  Amnesty International hefur ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna aðbúnaðar og meðhöndlunar hælisleitenda í landinu og krafið grísk yfirvöld um úrbætur.

Íslandsdeild Amnesty International hvetur íslensk stjórnvöld til að endurskoða ákvörðunina og nýta ákvæði Dyflinnar-samkomulagsins sem heimila að umfjöllun um hælisbeiðnir fari fram hér á landi. Íslandsdeild Amnesty International vill einnig hvetja yfirvöld til að tryggja að þeir hælisleitendur sem hingað koma í leit að skjóli fái réttláta málsmeðferð og komið sé í veg fyrir að þeir séu sendir til landa þar sem öryggi þeirra og réttindum er ógnað," að því er segir í bréfi til dómsmálaráðherra.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
VW TRANSPORTER 4X4 DÍSIL 2006
Til sölu VW TRANSPORTER KASTEN SYNCRO Dísil árg. 2006 með fjórhjóladrifi ekinn ...
Hamraborg útsýnisskrifstofuhúsn. 4. hæð
Til leigu gott skrifst.húsnæði ca 25 fm. Laust strax. Lyftuhús. Næg bílastæði. S...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...