Opnun útibúa SPRON frestast

stækka

mbl.is/Árni Sæberg

Nú er ljóst að MP Banki mun ekki geta opnað á ný þrjú útibú SPRON n.k. mánudag 6. apríl eins og stefnt var að þegar gengið var frá samkomulagi við skilanefnd SPRON um kaup MP Banka á Netbankanum og útibúaneti SPRON.

Samkomulagið um kaup MP Banka á útibúaneti SPRON er gert með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlits.  Samkeppniseftirlitið hefur þegar veitt MP Banka undanþágu til að hefja starfsemi áður en eftirlitið fjallar endanlega um kaupin en þar sem samþykki Fjármálaeftirlitsins liggur enn ekki fyrir er ljóst að ekki mun takast að opna útibú SPRON eins fljótt og vonir stóðu til.

Í tilkynningu MP banka segir að starfsfólk bankans hafi orðið vart við mikinn áhuga meðal starfsmanna og viðskiptavina SPRON á fyrirhugaðri enduropnun útibúanna við Skólavörðustíg, á Seltjarnarnesi og í Borgartúni.

MP banki getur ekki tilgreint nýja opnunardagsetningu á þessari stundu en í tilkynningu segir að ljóst sé að það muni taka starfsfólk MP Banka og SPRON nokkra daga að undirbúa opnun útibúanna á nýjan leik eftir að samþykki Fjármálaeftirlitsins liggur fyrir. Lögð verði áhersla á að hraða þeirri vinnu eins og frekast er unnt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kristmundur Axel Kristmundsson söng og dansaði með Bláum ópal í Hörpu í gær.

„Ég hef sjaldan verið jafnglaður“

Í gær, 23:53 „Við í Bláum ópal erum rosalega sáttir og þakklátir fyrir allan stuðninginn, þvílík snilld,“ segir Kristmundur Axel Kristmundsson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal. Í bréfi sem hann sendi mbl.is eru endalausir broskarlar :-) enda segir Kristmundur Axel: „Ég hef sjaldan verið jafn glaður og bjartsýnn á lífið eins og núna.“ Meira »
Ýmsar verur klífa nú Hallgrímskirkju í magnaðri ljósasýningu.

Böðuð ljósi og litum

Í gær, 20:52 Hallgrímskirkja verður böðuð mögnuðum ljósum og litum á sífelldri hreyfingu til miðnættis en gjörningurinn er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar sem lýkur í kvöld. Höfundur ljósasýningarinnar er Marcos Zotes. Meira »

Meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
Í gær, 20:10 54% Íslendinga vilja að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér sem forseti landsins. Þetta sýnir ný könnun sem sagt var frá í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Meira »

„Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“

Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, eru meðal þeirra sem stofna Breiðfylkinguna.
Í gær, 18:57 „Mér finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir fyrri stofnfund nýju hreyfingarinnar sem gengur undir vinnuheitinu Breiðfylkingin. Hún var spurð að því hvort ekki kæmi til greina að nýju stjórnmálaöflin sem fram hafa komið að undanförnu gætu boðið fram saman. Meira »

Blár ópal fékk flest atkvæði

Kristmundur Axel Kristmundsson, syngur með Bláum ópal í Hörpu í gærkvöldi.
Í gær, 18:16 Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér. Meira »

Hundrað þúsund meira í bensínskatt

Í gær, 19:04 Venjuleg fjölskylda greiðir ríkinu hundrað þúsund krónum meira á ári í bensínskatta nú en fyrir fjórum árum. Sá hluti kaupverðsins sem olíufélögin fá til sín hefur hækkað um 87% á sama tíma. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Meira »

„Þjóðin valdi okkur“

Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar ...
Í gær, 18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. Meira »

Gæslan bíður eftir skýrslu

Þór á siglingu.
Í gær, 17:56 Sérfræðingar á vegum Rolls Royce reyna nú að finna orsök bilunar í nýju varðskipi Landhelgisgæslu Íslands sem kom til hafnar í Bergen í Noregi sl. miðvikudagskvöld. Meira »

Vilja nýtt kúakyn til Íslands

Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur eitt stærsta kúabú landsins í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Í gær, 17:49 Bændurnir í Gunnbjarnarholti og á Skáldabúðum vilja flytja inn nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst. Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur bæði búin ásamt konu sinni Berglindi Bjarnadóttur, segir nýtt kúakyn vera forsendu þess að kúabændur geti þróað mjólkurframleiðslu sína. Meira »

Hundur fastur í neti

Hundur af border collie-kyni.
Í gær, 17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Ók á ljósastaur

Í gær, 17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
Í gær, 16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

Í gær, 15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
Í gær, 15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
Í gær, 15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
Í gær, 15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurlandi

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
Í gær, 15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
Í gær, 15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
** IKEA boxdýna **
Dýnan er 160x200 á fjórum viðarfótum. Boxdýnur frá Ikea eru gormdýnur í ramma. ...
Apple Powerbook G4 1,5 GHz til sölu
Apple Powerbook G4 1,5 GHz 80 Gb harður diskur 512 Mb ram Lítur mjög vel út, ...
Bókhaldsþjónusta
bókhald, laun, skil á vsk og lífeyrissj., uppgjör og framtal. s:533-4700, 842-55...
Nuddbekkir : Breiðir fyrir fólk af stærri gerðinni sem og ófrískar.
Nuddbekkur- Sterkur-Fallegur-Endingagóður. 1.92*81cm Tilboð 67.000. Allt á mynd ...
 
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Order nr. 003077 -ilo
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn í Kópavogi Dalvegi 18, ...
Efta administrative assistant
Önnur störf
The Financial Mechanism Office (FMO) ...