Braut gegn þroskaheftum pilti
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að sálfræðingur verður leiddur fyrir rétt sem vitni til að staðfesta vottorð sitt í kynferðisbrotamáli. Málið var höfðað á hendur karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn þroskaheftum ungum pilti frá fyrstu mánuðum ársins 2006 til aprílmánaðar 2008. Pilturinn var 13-15 ára þegar brotin áttu sér stað.
Verjandi mannsins mótmælti að sálfræðingur sem hafði piltinn til meðferðar yrði leiddur fyrir réttinn sem vitni og að vottorð hans yrði lagt fram sem skjal í málinu. Mótmælin voru tilkomin vegna þessa að daginn fyrir þingfestingu var sálfræðingnum bætt við vitnalista. Kom fram að ekki hefðu fyrr legið fyrir upplýsingar um að sálfræðingurinn hefði komið að málinu.
Í vottorðinu er því lýst að pilturinn hefði sótt 15 viðtöl til sálfræðingsins að ósk Barnaverndarnefndar Reykjavíkur um að hann fengi sérfræðilega greiningu og meðferð vegna gruns um að hann hefði sætt kynferðislegu ofbeldi af hendi mannsins. Lýsir hún þar niðurstöðum sjálfsmatskvarða og greinir frá því að viðtölin hafi leitt í ljós fjölmörg vandamál hjá brotaþola sem þekkt séu meðal barna sem sætti hafi kynferðislegu ofbeldi í langan tíma.
Í niðurstöðum héraðsdóms, sem Hæstiréttur byggir á sínum dómi, segir að löng dómaframkvæmd sé fyrir því í kynferðisbrotamálum að lögð séu fram vottorð sálfræðinga og annarra sérfræðinga sem hafa fórnarlömb til meðferðar.
„Hafa gögn þessi verið talin nauðsynlegur og eðlilegur þáttur í því að upplýsa um afleiðingar hins meinta brots fyrir brotaþola og jafnvel til þeirra litið við mat á sök eða sakleysi ákærða. Eru og fjölmörg dæmi þess að slík vottorð hafi verið lögð fram undir rekstri máls, allt til aðalmeðferðar þess, auk þess sem dæmi er um að framlagning slíks vottorðs hafi verið heimiluð fyrir Hæstarétti án þess að það hafi áður verið lagt fram í héraði,“ segir í niðurstöðunni.
Greiddi fyrir með tölvuleikjum
Í ákæru gegn manninum kemur fram að hann hafi notfært sér þroskaskerðingu piltsins, reynsluleysi af kynlífi og tölvufíkn. Maðurinn greiddi fyrir kynmök með tölvuleikjum eða peningum. Brotin áttu sér oftast stað í bifreið mannsins í nágrenni við Hrafnistu í Hafnarfirði eða í bílskúr við heimili piltsins.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 24. júní 2009, Innlent Braut gegn þroskaskertum pilti
- Miðvikudagur, 23. september 2009, Innlent Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn stjúpsystur
- Þriðjudagur, 29. desember 2009, Innlent Drengur fær bætur fyrir handtöku
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Með tæp 40 grömm af amfetamíni
- Fimmtudagur, 2. október 2008, Innlent 65 milljóna sekt vegna samkeppnisbrota staðfest
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































