Gætti ekki að andmælarétti
Umboðsmaður Alþingis beinir þeim tilmælum til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins að það taki mál karlmanns frá Venesúela til endurskoðunar. Útlendingastofnun ákvað að vísa manninum úr landi haustið 2006 og bannaði honum jafnframt endurkomu til Íslands næstu sjö ár. Dómsmálaráðuneytið staðfesti þessa ákvörðun í febrúar 2007. Umboðsmaður telur að ekki hafi verið gætt að andmælarétti mannsins. Auk þess léki vafi á að maðurinn hafi skilið innihald bréfs um brottvísun, en bréfið var skrifað á ensku.
Maðurinn og íslensk eiginkona hans, sem nú eru búsett í Venesúela, leituðu til umboðsmanns Alþingis og kvörtuðu yfir úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
Maðurinn kom til Íslands í maí 2005 og hófst samband hans og konunnar í júlí sama ár. Í byrjun ágúst 2005 átti maðurinn, ásamt bandarískum varnarliðsmönnum þátt í áflogum fyrir utan skemmtistað í Keflavík. Maðurinn var ákærður fyrir stórfellda líkamsárás gegn einum varnarliðsmannanna. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 16. júní 2006 var maðurinn dæmdur í 18 mánaða fangelsi en þar af voru 15 mánuðir skilorðsbundnir. Maðurinn hóf afplánun í fangelsinu Litla-Hrauni 6. júlí 2006 en í byrjun ágúst sama ár sendi Útlendingastofnun honum bréf í fangelsið þar sem honum var tilkynnt um væntanlega ákvörðun stofnunarinnar um brottvísun hans og bann við endurkomu til Íslands. Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun mannsins var framfylgt 4. október 2006, sama dag og hann losnaði úr fangelsi, og hann því fluttur brott frá Íslandi.
Skildi ekki bréf Útlendingastofnunar
Í kvörtun málsins er gerð athugasemd við að manninum hafi verið afhent bréf Útlendingastofnunar á ensku á meðan hann afplánaði refsdóm í fangelsi hér á landi, þar sem honum var kynnt að fyrirhugað væri að vísa honum úr landi og ákvarða endurkomubann. Maðurinn hefði ekki skilið bréfið auk þess sem honum hafi verið veittur þriggja daga frestur til að skila greinargerð.
Í úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins var komist að þeirri niðurstöðu að nægilega hefði verið gætt að andmælarétti mannsins við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun.
Umboðsmaður Alþingis ákvað í samræmi við kvörtun málsins og afstöðu ráðuneytisins í úrskurði sínum í máli mannsins að afmarka athugun sína við það hvort sú afstaða ráðuneytisins, að nægilega hefði verið gætt að andmælarétti hans við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, hefði verið í samræmi við lög auk þess sem athugunin beindist að nokkru marki að gagnaöflun ráðuneytisins í kjölfar beiðni mannsins um endurupptöku.
Ekki gætt að andmælarétti
Í niðurstöðu umboðsmanns Alþingis segir að sú afstaða dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í úrskurði málsins, um að gætt hafi verið að andmælarétti hans við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög.
Þá telur umboðsmaður að gera megi athugasemdir við svör dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í tilefni af fyrirspurn umboðsmanns Alþingis um gagnaöflun vegna beiðni um endurupptöku málsins.
Umboðsmaður beinir þeim tilmælum til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins að það taki mál mannsins til endurskoðunar, komi fram beiðni þess efnis, og taki þá mið af þeim sjónarmiðum sem fram koma í áliti þessu. Þá beinir umboðsmaður þeim almennu tilmælum til ráðuneytisins, að sú venja sem lýst er í svarbréfi ráðuneytisins til umboðsmanns Alþingis um afhendingu bréfa Útlendingastofnunar til útlendinga og ábyrgðar þess, sem afhendir bréfið, á því að meta hvort móttakandi hafi skilið efni bréfsins og að kalla eftir túlki ef þörf er talin á því, verði endurskoðuð hið fyrsta og leitast verði við að taka upp verklag sem samrýmist betur þeim skyldum sem hvíla á Útlendingastofnun.





































