Óttast áhlaup á Kaupþing

Morgunblaðið Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is

Seðlabanki Íslands óttaðist að áhlaup yrði gert á Nýja Kaupþing sem bankinn myndi ekki ráða við ef MP banki fengi að kaupa útibúanet SPRON. Heimildir Morgunblaðsins herma að Seðlabankinn hafi talið mögulegt að fyrrum viðskiptavinir SPRON, sem hafa verið fluttir til Nýja Kaupþings, myndu flykkjast aftur yfir í sín gömlu útibú með þeim afleiðingum að Kaupþing hefði ekki bolmagn til að greiða út allar innstæður þeirra.

Vegna þessa hefur Seðlabankinn beitt sér fyrir því að Fjármálaeftirlitið (FME) tefji kaup MP banka á útibúanetinu og Netbankanum, nb.is, en kaupin eru háð samþykki FME.

Deilur komu í veg fyrir opnun

Til stóð að útibú SPRON myndu verða opnuð í dag en deilur helgarinnar komu í veg fyrir það. Allir málsaðilar unnu að lausn þess í gær og leitað var leiða til að sætta sjónarmið. Líkur eru á því að endanleg niðurstaða liggi fyrir síðar í dag.

Stjórnendur Nýja Kaupþings hótuðu skilanefnd SPRON lögsókn vegna sölu á eignunum í síðustu viku, en nefndin hafði þá samþykkt að selja MP banka þær á 800 milljónir króna. Sú ráðstöfun olli Kaupþingsmönnum áhyggjum þar sem þeir töldu að eignir SPRON hefðu átt að vera til tryggingar þeim innlánum sem færð voru yfir í bankann. Því hefði getað komið upp sú staða að útvega þyrfti fjármagn með mjög skömmum fyrirvara, annaðhvort með fyrirgreiðslu frá Seðlabankanum eða með brunaútsölu á eignum SPRON, til að standast áhlaup fyrrum viðskiptavina SPRON.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur m.a. gert skuldbindandi samning við Ríkisútvarpið ohf.

Bæta þarf eftirlit með samningum

17:06 Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert fjölmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd samninganna sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. Meira »
Hæstiréttur

Krafðist að dómari viki vegna óvildar föður

16:41 Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu manns um að dómari viki sæti var hafnað. Maðurinn byggði kröfu sína á meintri óvild látins föður dómara í garð látins föður stefnda. Meira »

Margrét er sátt við flutning

Margrét Frímannsdóttir er sátt við flutning fangelsisstarfseminnar á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi.
16:32 „Sogn býður upp á marga góða kosti, við erum sátt við þennan stað,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, um þá hugmynd að flytja fangelsisstarfsemina á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi. Meira »

„Þetta er hræðilegt, ég er í áfalli“

Tómur skartsgripastandur í verslun Lauru Ashley.
16:16 Brotist var inn í verslun Lauru Ashley í nótt og þaðan stolið öllum skartgripum og öðrum vörum. Tvö önnur innbrot voru framin í verslunum í nágrenninu í nótt. Meira »

Nauðgunarmál enn í rannsókn

16:07 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn til rannsóknar nauðgunarkærur á hendur Agli Einarssyni. Í síðustu viku sendi ríkissaksóknari málið aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. Sú rannsókn gengur ágætlega og á lögreglan von á að henni muni ljúka í lok næstu viku. Meira »

„Kemur ekki á óvart“

Sigurjón Þórðarson
16:24 „Þessi dómur kemur mér ekki á óvart,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins, um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Reykjavíkurborg beri að greiða Frjálslynda flokknum tæpar sjö milljónir króna sem greiddar voru til Borgarmálafélags F-listans sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi borgarstjóri, hafði umráð yfir. Meira »

Miðar hægt en örugglega niður

Tveir Bretar voru sóttir á Vatnajökul í morgun. Þeir eru nú á leið niður af ...
16:15 Björgunarleiðangrinum á Vatnajökli miðar hægt en örugglega til byggða með Bretana tvo sem óskuðu eftir aðstoð í morgun. Slæm færð er á svæðinu og veður versnandi. Meira »

Frjálslyndi flokkurinn vann

Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi.
15:46 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Frjálslynda flokknum í vil í dómsmáli sem reis vegna ágreinings um hver ætti að fá framlag Reykjavíkurborgar vegna framboðs til borgarstjórnar. Borginni er gert að greiða 6,7 milljónir, auk vaxta, til flokksins. Meira »

Varað við ísingu

15:43 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því hætta sé á að það myndist lúmsk ísing á vegum sunnan- og vestanlands nú síðdegis þegar fer að frysta á ný. Meira »

Jarðskjálfti upp á 3,8 stig

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg. Sá stærsti var 3,8 á richter kvarða.
15:39 Skjálftahrina hefur staðið yfir síðan í morgun á Reykjaneshrygg. Hafa 4-5 skjálftar náð yfir 3 stigum, sá stærsti upp á 3,8 stig. Meira »

Ríkisstjórnin móti sameiginlega ESB-stefnu

Þinghús ESB í Strasbourg.
15:42 Fram kemur í uppkasti að ályktun utanríkismálanefndar þings Evrópusambandsins frá síðastliðnum mánudegi að fulltrúar í nefndinni hefðu áhyggjur af því að ríkisstjórnarflokkarnir hér á landi, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Samfylkingin, séu ekki samstíga í afstöðu sinni til inngöngu í sambandið. Meira »

Heitavatnslaust í Fossvogi á morgun

Starfsmenn Orkuveitunnar
15:25 Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í fyrramálið í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Vonast er til að viðgerð verði lokið uppúr kl. 19:00 sama dag. Meira »

„Verða á endanum að standa fyrir eitthvað“

15:09 „Það er ljóst að skoðanakannanir benda til þess að það séu margir óákveðnir kjósendur, við erum að tala um 30-40% kjósenda, og það er lítið traust til Alþingis þannig að það er alveg ljóst að ný framboð gætu átt talsverða möguleika,“ segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. Meira »

1.300 tonn í fjórum köstum

Víkingur AK-100
14:58 Víkingur AK er nú á leið til Akraness eftir vel heppnaða veiðiferð á loðnumiðin á Grímseyjarsundi. Þar fengust um 1.300 tonn af góðri loðnu í fjórum köstum frá því í gærmorgun og fram til kvölds. Meira »

Öll félögin hafa hækkað

Bensíndropinn verður sífellt dýrari.
14:37 Öll olíufélögin hafa nú hækkað verð á eldsneyti um 3-4 kr. Bensínlítrinn kostar nú í kringum 249 kr. og lítrinn af dísilolíu um 256 kr. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að ekki sé hægt að skýra þessu hækkun með eðlilegum hætti. Meira »

Dæmdur fyrir vörslu fíkniefna

Kannabis
15:03 Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu fíkniefna. Meira »

Mega ekki fá nýja púða strax

Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um ...
14:40 Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um leið og PIP-púðarnir verða fjarlægðir.Ekki er talið óhætt að setja strax nýja púða þar sem þeir leku gætu hafa ert vefi í líkama kvennanna. Þetta segir sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu. Meira »

Ræða við grunnskólakennara

Kjarasamningar kennara renna út í lok mánaðarins.
14:35 Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur samþykkt að fela samninganefnd sambandsins að gera nýja viðræðuáætlun við Kennarasamband Íslands vegna Félags grunnskólakennara, sem miði að því að viðræðum ljúki með undirskrift nýs kjarasamnings aðila eigi síðar en 1. desember 2012. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Miniature Dachshund (Langhundur)
Erum með yndislega langhunda tík til sölu. Heilsufarssk., örmerktir og ættbókarf...
TD bátavélar
Eigum brátt á lager 58 hp bátavélar m/gír 1:2 , mælaborð og rafkerfi, nokkrar ó...
MacBook til sölu
Svört 13" MacBook frá lok ársins 2006. Ágætlega farin, rafhlaða léleg. Hleðslut...
Kælimiðlar - hagstætt verð
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager, svo sem R404a og R134a. Beinn i...
 
I.o.o.f.7
Félagsstarf
I.O.O.F.7.[192080271/2[F.L....
3 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Stúkan hlín
Félagsstarf
jHlín 6012020719 VI ...