Yfir 12 þúsund á atvinnuleysisskrá á höfuðborgarsvæðinu

Rúmlega tólf þúsund manns eru á atvinnuleysisskrá á höfuðborgarsvæðinu
Rúmlega tólf þúsund manns eru á atvinnuleysisskrá á höfuðborgarsvæðinu mbl.is/Ómar

Alls eru 18.012 skráðir á atvinnuleysisskrá á landinu öllu, þar af 11.463 karlar og 6.549 konur. Á höfuðborgarsvæðinu er 12.081 skráður á atvinnuleysisskrá.

Á vef Vinnumálastofnunar kemur fram að  allir sem skráðir hafa verið í daglegan gagnagrunn um atvinnulausa/fólk í atvinnuleit séu skráðir á atvinnuleysisskrá sem birt er á vef Vinnumálastofnunar. Gera verði ráð fyrir að þar af séu nálægt 1.000 manns sem ekki eru í atvinnuleit vegna breyttra aðstæðna eftir að þeir skráðu sig, en upplýsingar um slíkt berast Vinnumálastofnun yfirleitt ekki fyrr en um eða upp úr mánaðarmótum.

Þá verði að hafa í huga að sá hópur sem ekki er að fullu atvinnulaus fer stækkandi, þ.e. þeir sem eru á hlutabótum á móti hlutastarfi. Um þessar mundir er fjöldi þeirra sem eru á hlutabótum á móti hlutastarfi yfir 3.000 manns.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert