Dagskrártillaga felld
Tillaga, sem þingmenn Sjálfstæðisflokks lögðu fram á Alþingi breytingu á dagskrá þingsins var felld með 28 atkvæðum þingmanna Samfylkingar, VG, Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins gegn 19 atkvæðum Sjálfstæðisflokks.
Tillagan var um að boðaður yrði nýr fundur á Alþingi þar sem frumvarp um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði yrði fyrst á dagskránni en frumvarp um stjórnlagaþing yrði síðast.
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að krafa væri um það í þjóðfélaginu að fulltrúar allra stjórnmálaflokka snúi bökum saman að leysa úr vanda heimilanna. Framlagning þessarar tillögu sé framlag sjálfstæðismanna til að svo megi vera.
Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að áfram héldi það fáránleikaleikhús, sem Sjálfstæðisflokkurinn efndi til í gær, en þingmenn flokksins lögðu þá einnig fram tillaga um breytta dagskrá. Árni Páll sagði, að látið væri í það skína að það skipti verulegu máli hvort frumvarp um greiðsluaðlögun verði rætt í dag eða á morgun því gildistökudagurinn í frumvarpinu væri 15. maí.
Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vísaði á bug ummælum Árna Páls um fáránleikaleikhús og einnig ummælum frá Árna Þór Sigurðssyni, sem hann kallaði úrs sal, um að verið væri að misnota málfrelsið á Alþingi. „Hvers konar tal er þetta?" spurði Sturla.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagði sjálfstæðismenn stunda grímulaust málþóf og beittu ýmsum brögðum, m.a. að leggja fram sífelldar dagskrártillögur. Sagðist Siv telja, að þingið hefði gert mistök í gær með því að taka tillögu sjálfstæðismanna þá á dagskrá.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Dagskrártillaga felld
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Innlent Frávísunartillaga felld
- Föstudagur, 21. ágúst 2009, Innlent Breytingartillögur nægja ekki
- Fimmtudagur, 16. júlí 2009, Innlent Mikil óvissa um ESB
- Mánudagur, 26. maí 2008, Innlent Frávísunartillaga um framhaldsskólafrumvarp felld
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































