Hækkun einingaverðs til lækna frestað
Hækkun á einingaverði til sjálfstætt starfandi lækna upp á 9,02% sem taka átti gildi 1. apríl síðastliðinn hefur verið frestað til 1. júní nk.
Samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavíkur og Tryggingastofnunar ríkisins sem undirritaður var 29. mars 2008 hækkaði einingaverð vegna lækninga utan sjúkrahúsa um 4,7%, úr 254 krónum einingin í 266 krónur. Jafnframt átti einingaverð að hækka um 9,02% þann 1. apríl sl. og verða 290 krónur.
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra óskaði eftir því að læknar féllu frá þessari hækkun. Þeir höfnuðu því en féllust á að fresta hækkuninni til 1. júní nk. Samkomulag þar um var undirritað 25. mars sl.
Hækkun á einingaverði til sjálfstætt starfandi lækna bar á góma á fundi heilbrigðisráðherra með trúnaðarmönnum stéttarfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar og formönnum stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands og BSRB. Staða heilbrigðisþjónustunnar og framtíðarhorfur voru til umræðu.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness spurði Ögmund Jónasson á fundinum hvort ekki skyti skökku við að gengið hafi verið frá þessu samkomulagi við sjálfstætt starfandi lækna, á sama tíma og verið væri að skera niður í heilbrigðiskerfinu um 6,7 milljarða.
„Það liggur fyrir að hér er um tekjuhæstu einstaklingana innan heilbrigðiskerfisins að ræða. Þegar hækkunin í 290 krónur þann 1. júní nk. hefur tekið gildi þá hefur einingaverðið hækkað um 14% á rétt rúmu ári. Það er líka rétt að benda á að kjarasamningar ófaglærðra starfsmanna heilbrigðisstofnanna innan SGS runnu út 31. mars sl. og ljóst að þetta samkomulag mun klárlega gefa tóninn í þeim viðræðum sem nú standa yfir við fjármálaráðherra. Það er mín skoðun að það gangi ekki upp að ganga frá slíku samkomulagi á sama tíma og verið er að skera niður launakjör hjá ófaglærðum í umtalsverðum mæli,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Mun setja sjálfstætt starfandi læknastofur á hliðina
- Föstudagur, 6. mars 2009, Innlent Mannauður í heilbrigðisþjónustu skoðaður
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Ekki verði hróflað við lægstu launum
- Mánudagur, 23. mars 2009, Innlent Hlynntur valfrjálsu tilvísanakerfi
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Skerðing þjónustu óhjákvæmileg
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































