Lögmaðurinn talinn umboðslaus
Sigurður G. Guðjónsson. mbl.is/Ásdís
Sigurður var lögmaður IP-fjarskipta ehf. og Teymis hf. í máli sem höfðað var gegn þeim Hermanni og Jóhanni Óla, en þeir eiga Capital Plaza ehf. sem á 49% hlut í IP-fjarskiptum ehf. á móti Teymi hf. sem á 51%. Stefnendur kröfðust þess að úrskurður fjármálaráðherra frá 25. febrúar sl. yrði felldur úr gildi. Samkvæmt honum var úrskurður fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra frá 12. janúar sl. felldur úr gildi. Fyrirtækjaskrá hafði þá úrskurðað að ákvarðanir á stjórnarfundi IP-fjarskipta ehf. 30. desember 2008 um brottvikningu Hermanns Jónassonar sem framkvæmdastjóra og prókúruhafa IP-fjarskipta og ráðningu Ragnhildar Ágústsdóttur í hans stað hefði verið teknar með lögformlegum hætti. Því hafi fyrirtækjaskrá verið rétt og skylt að skrá innsenda tilkynningu um það. Í úrskurði fjármálaráðherra var fyrirtækjaskrá gert að afmá tilkynninguna úr fyrirtækjaskrá.
Hinir stefndu gerðu báðir þær dómkröfur að málið er varðaði IP-fjarskipti ehf. yrði fellt niður en málinu að öðru leyti vísað frá dómi. Þeir bentu báðir á að stjórn félagsins hefði ekki tekið ákvörðun um málarekstur vegna málsins fyrir dómstólum. Því hefði Sigurður G. Guðjónsson hrl. hvorki málflutningsumboð né málssóknarumboð frá IP-fjarskiptum ehf.
Héraðsdómur ákvað að fella málið niður varðandi IP-fjarskipti ehf. Að öðru leyti var málinu vísað frá dómi. Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 3. apríl 2009, Innlent Máli Teymis vísað frá dómi
- Laugardagur, 3. janúar 2009, Innlent Segir forstjórann hafa haft umboð stjórnar
- Miðvikudagur, 31. desember 2008, Innlent Hlýtur að koma til skoðunar samkeppnisyfirvalda
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































