Óskað eftir lengri tíma til umræðu

stækka

Kristinn Ingvarsson

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur óskað eftir því að lengri tíma verði varið í að fjalla um skýrslu fjármálanefndar breska þingsins um áhrif aðgerða breska stjórnarinnar á fall íslensku bankanna sem ráðgert er að  fram fari í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag kl. 14:30.

Málshefjandi umræðunnar er Kristrún Heimisdóttir, en Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra verður til andsvarar. 

Kjartan Ólafsson, þingforseti, upplýsti Sigurð Kára um það að ákveðið hefði verið að verja aðeins hefðbundnum hálftíma í þessar utandagskrárumræður og ekki hvikað frá þeirri ákvörðun.

Árni M. Mathiesen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kvaddi sér hljóð í upphafi þingfundar í dag til þess að þakka fyrir að loks hefði verið boðað til fundar í umhverfisnefnd í gærkvöldi eftir að meirihlutinn hefði kallað eftir slíkum fundi í fimm daga. Sagðist hann ekki vilja deila meira við formann og varaformann nefndarinnar um það hvers vegna ekki hefði verið boðað til fundar fyrr. 

Atli Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sagði ljóst að málsmeðferðin í „hinu  stóra umhverfisnefndarmáli“ hafi verið algjörlega eðlileg. Sagðist hann hafa boðist til þess að halda fundinn í veikindafjarveru formanns nefndarinnar, en sá ekki talið ástæðu til þess þar sem hann taldi sig aðeins myndu vera fjarverandi í skamman tíma vegna veikinda. 

Atli sagði ályktunina um losun gróðurhúsalofttegunda, sem meirihluti er fyrir meðal sjálfstæðis- og framsóknarmanna, vera óþarfi þar sem ljóst væri að Ísland verði líkt og aðrar þjóðir að draga saman í losun gróðurhúsalofttegunda. 

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði rétt að fara yfir það og skýra hvernig afgreiða ætti beiðnir um fundir í nefndum. Sagði hann allan gang á því hvernig á því væri tekið. Sagði hann einnig ágætt að skerpa á því hvað sé þingleg meðferð. Taldi hann það ekki vænlegt að Ísland, eitt iðnríkja, fari fram á að fá að menga meira.

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður utan flokka, sagði það sér mikil vonbrigði að þeir sem áður gagnrýndu meirihlutann fyrir valdhroka séu sjálfir byrjaðir að haga sér með nákvæmlega sama hætti og þeir sem þeir gagnrýndu. 

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, undraði sig á því að flutningsmenn þingsályktunartillögu um hvalveiðar skuli ekki hafa óskað eftir því umræða um þær fari fram á Alþingi. Sakaði hann flutningsmenn fyrir að beita hvalveiðum fyrir sér til þess að afla sér vinsælda heima í héraði. 

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði það mikilvæga íslenska hagsmuni að tillaga meirihluta umhverfisnefndar verði rædd á Alþinigi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, tók undir með Illuga og sagði mikilvægt m.a. með tilliti til atvinnuuppbyggingar hérlendis að tillagan yrði samþykkt. Sagðist hún sannfærð um að hægt verði að sannfæra meirihluta þingsins að þessir hagsmunir séu ekki aðeins hagsmunir Íslands heldur heimsins alls. Kallaði hún einnig eftir því að þingsályktunartillaga um hvalveiðar fáist ræddar á þinginu. „Þetta eru tillögur í atvinnuskyni, sem fást ekki ræddar hér á þingi. Þingmenn Samfylkingar og VInstri grænna eru á móti því að atvinnumál komist á dagskrá,“ sagði Þorgerður Katrín.

„Við eigum að virkja eins og við mögulega getum hér á Íslandi mannkyni til hagsbóta, því þetta er jú bara einn hnöttur,“ sagði Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Sagði hann framleiðslu rafmagns á Íslandi mun umhverfisvænni en framleiðsla rafmagns í Kína með því að brenna kolum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
chuahua til sölu
ég er með tvo chuahua hunda til sölu tík og rakka þeir eru mjög ljúfir og góðir ...
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...