Í stofnfrumumeðferð
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur - ingibjorg@mbl.is
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, sem er lömuð fyrir neðan brjóst eftir að hafa dottið af hestbaki fyrir tveimur árum, vonast eftir að fá hreyfigetu með því að fara í stofnfrumumeðferð til Indlands.
„Það er í raun ömurlegt að eina úrræðið sem menn hafa á þessari tækniöld er að segja lömuðu fólki að það þurfi að sætta sig við að vera í hjólastól það sem eftir er ævinnar. Þetta eru bara hlutir sem fæstir geta hugsað sér,“ segir Þuríður sem var nýorðin fertug þegar slysið varð.
Allir fengið einhverja bót
Hún kveðst hafa lesið um góðan árangur af stofnfrumumeðferðinni í Delí á Indlandi. „Læknirinn hefur meðhöndlað yfir 700 sjúklinga og af þeim voru 150 með mænuskaða. Enginn hefur hlotið skaða af meðferðinni. Allir hafa hlotið einhverja bót, allt frá því að hreyfa tær upp í það að ganga á ný. Um daginn greindi sjúklingur, sem ég hef fylgst með og er búinn að fara þrisvar í meðferð til Indlands, frá því að hann væri farinn að finna fyrir virkni í blöðrunni. Bara það er stórsigur.“Meðferðin tekur þrjú ár
Þuríður Harpa þarf að fara allt að níu sinnum til Indlands vegna meðferðarinnar sem tekur rúmlega þrjú ár. Miðað við gengi krónunnar í dag verður heildarkostnaðurinn allt að 30 milljónir króna, að sögn Þuríðar.Samstarfsmenn hennar hafa hrundið af stað söfnun og nú hafa þegar safnast um 5,5 milljónir króna. Þar af söfnuðust um 2 milljónir á sérstöku styrktarkvöldi í reiðhöllinni á Sauðárkróki í síðustu viku.
Söfnunarreikningur er í Nýja Landsbankanum, 0161-15-550165, og í Sparisjóði Skagafjarðar, 1125-05-250067.
Í hnotskurn
» Þuríður Harpa Sigurðardóttir hryggbrotnaði og rifbeinsbrotnaði þegar hún datt af hestbaki auk þess sem mænan skaddaðist.» Hún vonaðist til þess að fá einhverja hreyfigetu fyrir neðan brjóst en svo hefur enn ekki orðið.
» Þuríður Harpa fann upplýsingar á netinu um stofnfrumumeðferð indversks læknis sem fullyrt er að hafi borið góðan árangur.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 27. september 2009, Innlent Farin að ganga með spelkur við göngugrind
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Þuríður vill 2. sætið í NA-kjördæmi
- Miðvikudagur, 23. júlí 2008, Innlent Tvöfalt fleiri fá ekki laun
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































