„Það logar allt stafnanna á milli“

Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Umfjöllun um styrkveitingar kemur á versta tíma fyrir flokkinn. stækka

Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Umfjöllun um styrkveitingar kemur á versta tíma fyrir flokkinn. mbl.is/Heiddi

„Það logar allt stafnanna á milli í flokknum“ segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem mbl.is ræddi við um styrkveitingar frá Landsbankanum og FL Group til Sjálfstæðisflokksins í árslok 2006.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafi haft frumkvæði að framlögum frá FL Group og Landsbankanum til Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið ákvörðun um að endurgreiða styrkina, samtals 55 milljónir króna, til þrotabúa umræddra fyrirtækja.

Sigurjón Þ. Árnason tók ákvörðunina einn
Nokkrir þingmenn sem blaðamaður ræddi við segja að tímasetning þessa máls sé skelfileg fyrir flokkinn. Bjarni Benediktsson er sagður eiga krefjandi verkefni fyrir höndum, en það sé að endurreisa traust þjóðarinnar á Sjálfstæðisflokknum. Það er mikil reiði meðal flokksmanna vegna þessa máls, en svo virðist sem aðeins örfáir einstaklingar innan flokksins hafi vitað af styrkveitingunum. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, sagði í gær að bankaráð Landsbankans hefði enga vitneskju haft um styrkveitinguna til Sjálfstæðisflokksins. Svo virðist því sem ákvörðun um styrkina hafi legið hjá bankastjórunum. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að styrkveiting frá Landsbankanum hafi orðið til eftir samtöl Guðlaugs Þórs og Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra. Heimildir mbl.is herma að Halldór J. Kristjánsson hafi ekki komið nálægt umræddri styrkveitingu.  

Það að kjörinn fulltrúi hafi hlutast til um styrkveitingar frá fyrirtækjum til flokksins er sagt brjóta gegn óskrifuðum vinnureglum sem Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi mótað í sinni tíð sem framkvæmdastjóri flokksins. Kjartan sagðist í gær ekki hafa vitað af umræddum styrkjum, en hann lét af störfum sem framkvæmdastjóri hinn 1. janúar 2007, nokkrum dögum eftir styrkveitingu frá FL Group. Fram að því hafði hann verið Andra Óttarssyni, nýráðnum framkvæmdastjóra innan handar. Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist í yfirlýsingu í gær bera alla ábyrgð á því að veita styrkjunum viðtöku.

Guðlaugur Þór Þórðarson auk Kjartans Gunnarssonar sátu í nefnd allra stjórnmálaflokka á sínum tíma sem var falið að fjalla um fjárframlög til stjórnmálaflokkanna. Geir H. Haarde veitti nefndinni forystu.

Ekki hefur náðst í Guðlaug Þór í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ekki hefur heldur náðst í Bjarna Benediktsson, formann flokksins.

Í nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup sem gerð var dagana 1.-7. apríl mælist fylgi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu 25,7% sem er nánast það sama og síðustu könnun Capacent í lok mars, en þá mældist fylgið 25,4%.

Guðlaugur Þór Þórðarson

Guðlaugur Þór Þórðarson mbl.is/Ómar

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans.

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans. mbl.is/Jim Smart

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.

Fjör á 112-deginum á Húsavík

17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »
Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.

Hvessir af suðri seint í kvöld

17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

„Stærstu verðlaunin eru heima“

Gísli Örn Gíslason, skyndhjálparmaður ársins 2011 og dóttir hans, Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
14:30 „Það hjálpaðist allt að á þessum degi. Það var röð tilviljana sem olli því að við vorum öll heima,“ segir Gísli Örn Gíslason, sem í dag var valinn skyndihjálparmaður ársins 2011 af Rauða krossi Íslands. Hann bjargaði lífi 18 ára gamallar dóttur sinnar í fyrra. Meira »

Óttast uppsögn

13:39 Snorri Óskarsson, grunnskólakennari við Brekkuskóla á Akureyri, telur að fundur hans á mánudaginn með skólayfirvöldum leiði til uppsagnar hans. Töluverð óánægja hefur verið vegna skrifa Snorra um samkynhneigða á bloggsíðu hans þar sem hann m.a. skrifar um samkynhneigð sem synd. Meira »

Fleiri vilja aukið íbúalýðræði

14:31 Áhugi á auknum tengslum kjósenda við fulltrúa sína hefur aukist mikið á sveitarstjórnarstiginu á umliðnum árum, og raunar einnig upp á það síðasta á landsmálastiginu. Í niðurstöðum könnunar sem unnin var fyrir innanríkisráðuneytið kemur fram að áhuginn sé heldur að aukast með stjórnmálamanna heldur en hitt. Meira »

Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
13:48 Fulltrúar sveitarstjórna sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, afþökkuðu boð til fundar í forsætisráðuneytinu sem halda átti 9. febrúar síðastliðinn. Meira »

Játaði sprengjumálið

Frá vettvangi sprengjunnar á Hverfisgötu
12:23 Karl á áttræðisaldri hefur játað aðild sína að sprengjumálinu svokallaða. Hann mun hafa verið einn að verki og liggja aðrir ekki undir grun en málið telst upplýst og hefur manninum verið sleppt úr haldi. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hef áhuga á að kaupa fasteign með yfirtöku lána.
Ég hef áhuga á fasteign á höfuðborgarsvæðinu með 100% yfirtöku lána, Upplýsinga...
Veslueldhús og veislusalur til sölu.
Fullkomið veislueldhús og veislusalur sem hægt er að breyta í kaffihús eða veiti...
nudd
good massage with two or four hands 8577611...
Úrvals hey í stórböggum á góðu verði
Til sölu úrvals hey í stórböggum, 55 km frá Reykjavík. Uppl. í síma 663 2712...
 
Laus staða í grunnskóla snæfellsbæjar
Grunn-/framhaldsskóla
Laus staða í Grunnskóla Snæfellsbæja...
3 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Vélvirki starf í noregi
Iðnaðarmenn
Vélvirki Starf í Nore...
Þerapisti
Sérfræðistörf
BARNAVERNDARSTOFA STARF ÞERAPISTA Í ...