Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins hættir
Andri Óttarsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins frá haustinu 2006, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að hann hafi í samráði við Bjarna Benediktsson, formann flokksins, ákveðið að láta af því starfi.
Andri áréttar að hann hafi ekki átt frumkvæði að því að haft var samband við FL Group eða Landsbankann um styrkveitingu og ekki tekið ákvörðun um að veita styrkjunum viðtöku.
Yfirlýsing Andra fer í heild sinni hér á eftir:
„Mikill styr hefur staðið um styrkveitingar FL Group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins í lok árs 2006. Ég hóf störf fyrir Sjálfstæðisflokkinn í október 2006 og starfaði samhliða fráfarandi framkvæmdastjóra til áramóta 2006/2007 en þá tók ég tók formlega við stöðunni.
Af gefnu tilefni vegna ofangreindra styrkveitinga vil ég að eftirfarandi komi fram:
- Ég átti ekki frumkvæði að því að haft var samband við FL Group eða Landsbankann um styrkveitingu.
- Ég tók ekki ákvörðun um að veita styrkjunum viðtöku.
Þrátt fyrir þetta og þær skýringar sem komu fram í yfirlýsingu fyrrverandi formanns flokksins er það mitt mat að við núverandi aðstæður þjóni það best hagsmunum Sjálfstæðisflokksins að ég láti af störfum sem framkvæmdastjóri hans þar sem mikilvægt er að leita allra leiða til að skapa traust og frið um flokksstarfið. Af þeim sökum hef ég boðist til að víkja úr stöðu minni.
Þetta geri ég í trausti þess að Sjálfstæðisflokkurinn, flokksmenn og frambjóðendur, fái sanngjarnt tækifæri og ráðrúm til að vinna stefnu sinni og hugsjónum brautargengi í komandi kosningum.
Ákvörðun mína hef ég í dag borið undir formann flokksins og höfum við á þessum forsendum orðið ásáttir um að ég láti af störfum.
Um leið og ég óska Sjálfstæðisflokknum og forystu hans alls hins besta þakka ég þeim hundruðum og þúsundum manna sem unnið hafa ötult starf fyrir og með flokknum á síðustu árum. Samskiptin við grasrót flokksins hafa veitt mér mikla ánægju og gert mig stoltan af því að tilheyra þessari stærstu pólitísku hreyfingu landsins. Mér var sannur heiður að sinna starfi framkvæmdastjóra flokksins þennan tíma þótt ekki hafi það verið auðvelt og vil ég þakka því færa og dugmikla fólki sem unnið hefur með mér á skrifstofu flokksins fyrir gott og óeigingjarnt starf.
Vissulega er þessi ákvörðun þungbær fyrir mig persónulega en hún er léttvæg í samanburði við hagsmuni þá sem eru í húfi. Það er einlæg von mín að þessi ákvörðun verði til þess að friður skapist. Ég bind miklar vonir við nýkjörna forystu flokksins og hlakka til að leggja mitt af mörkum til að stuðla að framgangi sjálfstæðisstefnunnar sem almennur flokksmaður á öðrum vettvangi.
Reykjavík, 10. apríl 2009, föstudaginn langa,
Andri Óttarsson"
Bloggað um fréttina
-
Gestur Guðjónsson Bakari hengdur fyrir smið -
Andri Geir Arinbjarnarson Spilling sem aldrei mátti tala um -
Sigurður Bogi Sævarsson Golgata, Valhöll og Guðlaugur Þór! -
Halldór Þórðarson/dóritaxi Styrkveitingar bankanna/Litla gula hænan sagði ............... -
Halldór Sigurðsson Langur föstudagur ---- myndband -
Salvör Kristjana Gissurardóttir Mannfórnir í Valhöll -
Birgir Þorsteinn Jóakimsson Hreinsunarátak… -
Björgvin R. Leifsson Framkvæmdastjórinn látinn taka á sig sökina -
Jón Ingi Cæsarsson Bakari fyrir smið ? -
Ásgeir Kristinn Lárusson staður og stund... -
Þórarinn Þ Gíslason ALLT ER Í KLANDRI...............HÆTTUR ER ANDRI ! AFHVERJU HÆTTIR HANN ... -
Kristján H Theódórsson Sláturtíðin hafin ! -
Þórhallur Pálsson Segðu þig úr flokknum líka ! -
Dofri Hermannsson Hvar er Barrabas? -
-
Marta Gunnarsdóttir Þeir krossfestu hann -
Einar Guðjónsson Gréta ´´haarde´´ tekur við.. -
Vilborg Traustadóttir Hengja bakara fyrir smið -
Ólafur Ragnarsson Sama sagan -
Finnur Bárðarson og hvað með það -
Jón Halldór Eiríksson Peðunum fórnað. -
Magnús Helgi Björgvinsson Maður gæti nú haldið að Andri hafi nú verið látin ... -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Litli maðurinn hættir -
Frikkinn Þá er búið að hengja bakarann -
Jenný Anna Baldursdóttir Límsetuþráhyggja -
Guðmundur Pétursson 3ja stærsta pólitíska hreyfing landsins -
Kjartan Birgisson Stóra "vissi ekki" málið -
Einar Ólafsson Auðvitað ber enginn ábyrgð -
Haraldur Bjarnason Peðunum fórnað -
Jens Sigurjónsson Furðulegir gjörningar. -
Þorkell Sigurjónsson MÚSAGANGUR Í VALHÖLL ? -
Friðrik Hansen Guðmundsson Endurreisa þarf trúverðugleika Sjálfstæðisflokksins. -
Magnús Geir Guðmundsson Fórnarlamb! -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Ekki í réttu klíkuliði?
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 9. apríl 2009, Innlent „Það logar allt stafnanna á milli“
- Laugardagur, 11. apríl 2009, Innlent Sjálfstæðisflokkurinn logar vegna styrkjanna
- Laugardagur, 11. apríl 2009, Innlent Segir báða framkvæmdastjóra hafa vitað af styrkjunum
- Sunnudagur, 12. apríl 2009, Innlent Fráleitt að draga nafn Kjartans inn í atburðarásina
- Föstudagur, 10. apríl 2009, Innlent Upplýsir ekki hverjir leituðu styrkja
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































