Frábiðja sér misnotkun í pólitískum tilgangi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Bjarni Benediktsson gerðu grein fyrir andstöðu …
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Bjarni Benediktsson gerðu grein fyrir andstöðu Sjálfstæðisflokksins við breytingum á stjórnarskránni á blaðamannafundi í Alþingishúsinu í upphafi vikunnar. mbl.is/Árni Sæberg

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi, hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem gerð er athugasemdir við heilsíðuauglýsingu þingmanna Sjálfstæðisflokks í Morgunblaðinu 8. apríl 2009. 

Þar kemur fram að Félag umhverfisfræðinga á Íslandi harmi það að
stjórnmálaflokkur skuli slíta úr samhengi umsögn fagfélags og frábiður sér
að faglegar umsagnir um þingmál séu misnotaðar með þessum hætti í pólitískum
tilgangi

Í fréttatilkynningunni er rifjað upp að í  heilsíðuauglýsingu sinni hafi þingmenn Sjálfstæðisflokks vitnað í nokkrar umsagnir fræðimanna og sérfræðinga og talað um harða gagnrýni þeirra á frumvarp til breytinga á stjórnarskrá.

„Félag umhverfisfræðinga á Íslandi vill koma eftirfarandi á framfæri vegna þessarar auglýsingar en í henni var vitnað í umsögn félagsins um frumvarpið.

Félag umhverfisfræðinga tók einungis 1. gr. frumvarpsins til umfjöllunar sem fjallaði um náttúruauðlindir í þjóðareign. Í umsögn sinni var félagið fylgjandi því að þessari grein yrði bætt inn í stjórnarskrá og því er erfitt að túlka umsögn félagsins sem harða gagnrýni á frumvarpið eins og segir í auglýsingu  Sjálfstæðismanna. Félagið gerði þó vissulega nokkrar athugasemdir við frumvarpið, m.a. að óvarlegt væri að tala um að allar náttúruauðlindir beri að nýta á sem hagkvæmastan hátt og að skilgreina þyrfti hvað felst í sjálfbærri þróun og í því að láta náttúruauðlindir í þjóðareign varanlega af hendi (sjá nánar umsögn félagsins á www.umhverf.is).

Félag umhverfisfræðinga telur að auglýsing þingmanna Sjálfstæðisflokks sé til þess gerð að valda misskilningi varðandi um hvað umsögn félagsins  raunverulega fjallaði. Félag umhverfisfræðinga á Íslandi harmar það að stjórnmálaflokkur skuli slíta úr samhengi umsögn fagfélags og frábiður sér að faglegar umsagnir um þingmál séu misnotaðar á þennan hátt í pólitískum tilgangi,“ segir í yfirlýsingu félagsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert