Aðrir flokkar fylgi fordæmi Sjálfstæðisflokksins

Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.

Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.

Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna telur að það sé rétt ákvörðun hjá forystu Sjálfstæðisflokksins að gefa upplýsingar um öll óvenjulega há fjárframlög sem flokkurinn hefur þegið á undanförnum árum. SUS skorar á aðra flokka að gera sambærilegar upplýsingar opinberar fyrir kosningar.

Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn SUS hefur samþykkt. Hún er eftirfarandi:

„Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna telur að það sé rétt ákvörðun hjá forystu Sjálfstæðisflokksins að gefa upplýsingar um öll óvenjulega há fjárframlög sem flokkurinn hefur þegið á undanförnum árum. Ákvörðunin stuðlar að því að endurvekja traust á stjórnmálaflokka. Ungir sjálfstæðismenn skora ennfremur á aðra stjórnmálaflokka að gera sambærilegar upplýsingar opinberar fyrir kosningar.

Stjórn SUS lýsir ánægju með að Geir H. Haarde, fyrrum formaður, hafi axlað ábyrgð á því að taka við óvenjulega háum fjárframlögum frá FL Group og Landsbankanum. Slík ábyrgð er því miður óalgeng í íslenskum stjórnmálum. Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna lýsir fullu trausti á núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins til þess að búa svo um hnúta að fjármál hans þurfi ekki að vera tilefni til tortryggni. Stjórn SUS lýsir einnig fullu trausti á framkvæmdastjóra flokksins. Stjórn SUS telur að nú þegar fyrrverandi formaður hefur tekið ábyrgð á því að hafa samþykkt styrkina þá haldi Sjálfstæðisflokkurinn sínu striki, enda hefur hann ekkert að fela. Nú stendur það upp á aðra stjórnmálaflokka að fylgja fordæmi Sjálfstæðisflokksins.“

Mistök sem sjálfstæðismenn harma

Þórlindur Kjartansson, formaður SUS, segir auk þess að „þær fjárhæðir sem um ræddi voru slíkar að ekki hefði átt að taka við þeim. Að taka við þessum styrkjum voru mistök sem allir sjálfstæðismenn hljóta að harma. Ungir sjálfstæðismenn hafa talað fyrir því, og samþykkt m.a. á þingi okkar í Vestmannaeyjum sl. haust, að fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálaflokka þurfi að vera opinber. Slíkt gagnsæi tryggir að kjósendur viti hvaða hagsmunatengsl eru til staðar hjá flokkunum og kemur í veg fyrir að flokkar taki við ofurframlögum."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Landcruiser 120 VX, 2003.
Til sölu Lc 120 vx 2003 disel ek.220Þ Topplúga.8manna.leður.krókur , 33" de...
Toyota Corolla1,4 VVTi,8/2003
Til sölu Toyota Corolla 1,4 VVTi, 8/2003. Ek. 100 þús., bensín, nýskoðaður, ný ...
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
Fleetwood Cheyenne (Resolute) 2006
Fleetwood Cheyenne 10 fet. Mjög vel með farið fellihýsi - lítið notað, nýskr. 20...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...