Braut gegn 14 ára þroskaheftri stúlku

stækka

mbl.is/Ómar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á sjötugsaldri í 15 mánaða fangelsi fyrir alvarlegt kynferðisbrot gegn 14 ára þroskaheftri stúlku.

Samkvæmt skýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði móðir stúlkunnar samband við lögreglu síðdegis föstudaginn 29. febrúar 2008 og greindi frá grun um að 14 ára þroskaheft dóttir hennar, hefði hitt tvo karlmenn á miðvikudeginum 27. febrúar 2008 og að mennirnir hefðu haft samræði við dóttur hennar. Í frásögn móðurinnar kom fram að fyrr á miðvikudeginum hafði stúlkan látið sig hverfa á brott af heimili móður sinnar og í framhaldinu fór fram skipuleg leit að stúlkunni. Hún fannst um fimm klukkustundum síðar á bensínstöð Olís við Gullinbrú í Reykjavík. Þá höfðu brotin verið framin gegn henni í heimahúsi í Grafarvogi.

Tveir menn voru ákærðir í málinu en annar mannanna var sýknaður. Hann var ákærður fyrir að hafa ásamt hinum dæmda sýnt stúlkunni klámmynd og fyrir að hafa haft samræði við stúlkuna.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir að sá hængur sé á máli að myndbandið sem mennirnir hafa viðurkennt að stúlkan hafi séð í íbúðinni, liggi ekki fyrir í gögnum málsins. Þá liggi ekki heldur fyrir að rannsókn hafi farið fram á myndbandinu sem leiði í ljós hvers kyns athafnir hafi verið á myndbandinu. „Úr því að myndband þetta liggur ekki fyrir dóminum eða niðurstaða rannsóknar lögreglu á athöfnum á myndbandinu, verður ekki hjá því komist að sýkna ákærðu báða af því að hafa sýnt stúlkunni klámmynd,“ segir í dómsorði.

Báðir ákærðu neituðu frá upphafi að hafa haft samræði við stúlkuna. Dómurinn segir að sú staða sé því uppi að staðfastur framburður ákærðu um samræði gangi gegn eindregnum framburði stúlkunnar. Í málinu njóti við engra annarra sönnunargagna um þetta efni sem stutt geta framburð stúlkunnar. „Þó svo framburðir ákærðu séu að sumu leyti á reiki og með innbyrðis misræmi, dugar það eitt og sér ekki til að telja sök á þá sannaða. Með hliðsjón af þessu verða ákærðu sýknaðir af sakargiftum samkvæmt öðrum tölulið ákæru [samræði við stúlkuna],“ segir í dómsorði.

Héraðsdómur sakfelldi hins vegar 63 ára karlmann fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn stúlkunni. Maðurinn hafði önnur kynferðismök en samræði við stúlkuna, þá 14 ára. Maðurinn neitaði sök en viðurkenndi að hafa viðhaft kynferðislegar athafnir með stúlkunni.

Í niðurstöðu héraðsdóms segir að maðurinn hafi verið sakfelldur fyrir alvarlegt kynferðisbrot gagnvart stúlku sem var 14 ára þegar brotið var framið. Hann eigi sér engar málsbætur. Þá segir að nýverið hafi verið gerðar breytingar á XXII. kafla hegningarlaga til að kveða á um að mál þessi verði tekin fastari tökum en áður. Brot mannsins varði nú fangelsi að lágmarki 1 ár en að hámarki 16 ár.

„Ákærði hefur fullframið brot gegn framangreindu ákvæði og eru engin sérstök atvik í málinu er draga úr alvarleika háttseminnar eða eru til þess fallin að lækka refsingu. Hefur löggjafarvaldið metið það sem svo að hlutrænt séð sé það alvarlegt brot að hafa kynferðismök við barn yngra en 15 ára,“ segir í dómsorði.

Maðurinn var dæmdur í 15 mánaða fangelsi og voru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna að neinu leyti. Þá var manninum gert að greiða stúlkunni 700 þúsund krónur í skaðabætur.

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fleetwood Cheyenne árg. 2007, 10 fet.
Markísa, fortjald, grjótvörn, upph., álfelgur, heitt og kalt vatn, íssk., hljómt...
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
Þæg hross
Er með nokkra þæga hesta til sölu sem rúlla töltið, einnig nokkur trippi uppl. s...
Lagersala Kauptuni 3 Garðabæ
Birkiplöntur,Ösp,Grenitré o.fl. plöntur á hnaus.Opið mánud. til föstud. kl.13-18...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...