Deilt um kynningu tillagna
Yfirlitskort sem sýnir legu Þjórsársveita: Ásahrepps, Flóahrepps, Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Kom þetta fram á fundi umhverfisnefndar Alþingis í gærmorgun. Atli Gíslason, þingmaður VG og varaformaður nefndarinnar, segir lögskylt að halda kynningarfund um breytingar á skipulagi áður en athugasemdafrestur rennur út. Það hafi ekki verið gert. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í umhverfisnefnd, segir að fram hafi komið að almennt væru ekki haldnir kynningarfundir með íbúum þegar breytingar sem þessar væru gerðar og því sæi hún enga ástæðu til annars en að ráðherra staðfesti skipulagið. Atli segir breytinguna verulega þar sem nú sé gert ráð fyrir tveimur virkjunum í stað einnar í fyrra skipulagi.
Fulltrúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps og umhverfisráðherra voru kallaðir á fund umhverfisnefndarinnar til að fara yfir málið að ósk Eyglóar og sjálfstæðismannanna Kjartans Ólafssonar og Jóns Gunnarssonar sem einnig eiga sæti í nefndinni. Tilefnið var breyting á skipulagi hreppsins sem nú er til staðfestingar hjá umhverfisráðherra en hún er gerð til að koma Holta- og Hvammsvirkjunum í Þjórsá inn á skipulag. Atli Gíslason hefur gert athugasemdir við skipulagið frá upphafi og fylgt þeim eftir við Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra, með sama hætti og aðrar skipulagstillögur sem gera ráð fyrir virkjunum í Þjórsá. Þegar þingmennirnir óskuðu eftir fundinum báðu þau um að Atli kæmi þangað sem hagsmunaaðili og kom formaður nefndarinnar því á framfæri. Atli andmælti, taldi að með því yrði brotið gegn tjáningar- og skoðanafrelsi sínu, og sat fundinn sem kjörinn fulltrúi. Sveitarfélagið hefur krafist þess að Kolbrún Halldórsdóttir víki sæti sem umhverfisráðherra við afgreiðslu málsins og þingmennirnir þrír hafa tekið undir þá kröfu. Ráðherra mun sjálfur meta hæfi sitt.
„Ég hef mestar áhyggjur af því að VG sé að koma í veg fyrir atvinnusköpun á Suðurlandi. Það er allt gert til þess að stöðva þessar framkvæmdir,“ segir Eygló. Tekur hún fram að með þessum orðum sé hún meira að ræða um framgöngu Atla Gíslasonar en ummæli Kolbrúnar Halldórsdóttur áður en hún varð ráðherra.



































