Orðalag í bréfum verður endurskoðað
Umhverfisstofnun harmar þann misskilning, sem upp kom þegar stofnunin sendi ábúendum á Sléttu bréf með leiðbeiningum varðandi umsókn um áskilin leyfi til þess að halda hreindýrakálfi, sem þar er í fóstri.
Segist stofnunin munu í kjölfarið endurskoða orðalag sambærilegra bréfa.
Dagbjört Briem Gísladóttir, bóndi að Sléttu, sagði í samtali við Morgunblaðið í dag að um hefði verið að ræða hótunarbréf um að verði ekki sótt um leyfi til að halda dýrið verði það skotið.
Umhverfisstofnun segist hafa viljað gefa leiðbeiningar varðandi umsókn um áskilin leyfi til þess að halda hreindýrakálfinum. Markmið bréfsins hafi ekki að hóta því að Umhverfisstofnun hyggðist aflífa dýrið, enda ekki í verkahring stofnunarinnar að taka ákvörðun þess efnis. Markmið bréfsins hafi verið að ítreka nauðsyn þess að sótt yrði um leyfi fyrir kálfinum.
Jafnframt hafi ábúandanum verið gerð grein fyrir því að yrði ekki sótt um leyfi til umhverfisráðuneytis um að handsama og halda dýrið kynni niðurstaða að verða sú að dýrið yrði aflífað.
Karl Karlsson, dýrlalæknir hjá Umhverfisstofnun, hafði samband í morgun við ábúendur á Sléttu og er í heimsókn á bænum til þess að ræða nánar leyfisumsóknina, kanna aðstæður sem og leita leiða til að finna farsæla lausn, enda hafi það alltaf staðið til, að sögn Umhverfisstofnunar.
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Líf Lífar í höndum ráðherra
- Miðvikudagur, 15. apríl 2009, Innlent Hóta að aflífa hreindýrskálf
- Miðvikudagur, 29. apríl 2009, Innlent Dagar Lífar taldir
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Mun tryggja að Líf fái líf
- Mánudagur, 8. júní 2009, Innlent Einn hluthafi ORF Líftækni er líka vísindalegur ráðgjafi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































