Trúnaðarmenn BHM leituðu skýringa hjá ráðherra
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna, segir að fundur heilbrigðisráðherra með trúnaðarmönnum BHM í morgun hafi verið góður. Hún tekur fram að BHM hafi óskað eftir því fyrir páska að fá fund með ráðherra. Fundurinn hafi því ekki verið boðaður vegna gagnrýni bandalagsins á umræðu um launalækkanir.
Á fundinum gafst trúnaðarmönnum tækifæri á að ræða stöðu mála og framtíðarhorfur milliliðalaust við Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra. Fjallað var um samráð og samstöðu innan heilbrigðisgeirans og stöðu heilbrigðisþjónustu á krepputímum.
Guðlaug segir mikilvægt að þeir sem starfi í heilbrigðisgeiranum fái tækifæri til skoðanaskipta um málefni heilbrigðisþjónustu í landinu. Engin ræði um velferðarkerfið án þess ræða um atvinnumál í leiðinni. „Við vorum mjög þakklát fyrir þennan fund og hann var í alla staði mjög góður,“ segir Guðlaug.
Hún segir að á fundinum hafi Ögmundur verið beðinn um að útskýra hvað hann ætti við þegar hann segir að það eigi að jafna kjörin í landinu. „Það hafa allir áhuga á því að heyra hvað segja menn að séu há laun. Um hvað er verið að tala þegar það er verið að tala um að jafna kjör og leiðrétta og eyða kjaramun. Um hvaða stærðir er verið að tala,“ segir Guðlaug.
Það hafi komið fram á fundinum að það þurfi að styrkja og efla velferðarkerfið ekkert síður en að verja það. Auk þess hafi verið bent á að kjaraskerðing sé löngu hafin. „Heilbrigðisstarfsmenn kannast ekki við neitt annað en að hafa stundað mjög aðhaldssama starfshætti til margra ára,“ segir hún.
Aðspurð segir Guðlaug að fundargestir hafi klappað fyrir Ögmundi þegar hann sagði að taxtar ættu að standa og að ekki eigi að hrófla við þeim kjörum sem eru bundin í kjarasamningum. „Því var tekið vel.“
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 29. maí 2008, Innlent Viðræður BHM við ríkið halda áfram
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Fundaði með BHM vegna gagnrýni
- Miðvikudagur, 13. maí 2009, Innlent „Kemur ekki á óvart“
- Þriðjudagur, 3. júní 2008, Innlent Krefjast fundar með ráðherrum
- Þriðjudagur, 12. maí 2009, Innlent Hjúkrunarfræðingar vilja út úr BHM
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































