Óttast áhrif sparnaðar í heilsugæslunni
Heilsugæslulæknar hafa áhyggjur af því að grunnþjónusta heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu verði skert um 10-15% á daginn um næstu mánaðarmót vegna niðurskurðar á vinnuframlagi heilsugæslulækna. Telja þeir að þetta muni leiða til þess að þjónusta við bráðveika, þar með talin veik börn, færist í vaxandi mæli á skyndivaktir.
Fram kemur á bloggsíðu Vilhjálms Ara Arasonar, heilsugæslulæknis í Hafnarfirði að það stingi í stúf að gripið sé til slíkra sparnaðaraðgerða á sama tíma og rætt er um að stefna að skynsamlegri notkun sýklalyfja til að sporna gegn þróun hratt vaxandi sýklalyfjaónæmis helstu sýkingarvalda.
Segir þar að algengasta ástæða þess að leitað sé með börn á heilsugæslustöðvar séu öndunarfærasýkingar og að í alþjóðlegum leiðbeiningum um meðferð loftvegasýkinga sé gengið út frá því að heilsugæslan sé sterk og geti boðið upp á aðgengi samdægurs, fræðslu um sýkingar og eftirfylgd með einkennum.
Sé dregið úr þessum þáttum aukist líkur á því að börnum séu gefin sýklalyf af minnsta tilefni á skyndivöktum. Þar sem Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hafi verið undirmönnuð af læknum um árabil sé þegar meira um slíkt hér á landi en á hinum Norðurlöndunum.
Bréfi lækna ekki svarað
Fram kemur á síðu Vilhjálms að heilbrigðisráðherra og heilbrigðisnefnd Alþingis hafi verið sent bréf þann 5. febrúrar þar sem fjallað var um málið. Segir þar að þrátt fyrir afleita stöðu Íslands í samanburði við nágrannalöndin í þessum efnum og mikilvægi þess að bregðast strax við vandanum hafi erindinu ekki verið svarað. Þvert á móti sé ráðgert að skerða dagþjónustu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu með einhliða varanlegum aðgerðum á kjörum heilsugæslulækna, langt umfram það sem þekkist hjá öðrum opinberum aðilum.
Bloggað um fréttina
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir Meiri ástæða til að hafa áhyggjur hér -
Sigurbjörn Sveinsson Niðurskurðurinn fagnaðarefni fyrir lækna
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Tími fyrir móttöku sjúklinga styttist
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Þjónusta heilsugæslu skerðist
- Fimmtudagur, 29. apríl 2010, Innlent HSS býður góða þjónustu
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Skerðing þjónustu óhjákvæmileg
- Þriðjudagur, 2. september 2008, Innlent Níu sagt upp hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































