Breytingar á búvörusamningum

Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og fjármálaráðherra, og fulltrúar Bændasamtaka Íslands, skrifuðu í dag undir breytingar á gildandi samningum um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu og sauðfjárræktar. Eru greiðslur til bænda skertar næstu þrjú ár miðað við gildandi samninga en samningarnir verða framlengdir um tvö ár.

Landbúnaðarráðuneytið segir, að í fjárlögum 2009 hafi verið ákveðið að skerða samningsbundnar greiðslur samkvæmt búvörusamningum vegna fyrirséðra erfiðleika í ríkisfjármálum í kjölfar bankahrunsins. Aðilar hafi síðan kannað nánar réttarstöðu gildandi samninga og sé niðurstaðan sú að veruleg réttaróvissa ríki um slíka skerðingu gagnvart rétti einstakra bænda. Af þessum sökum hafi að undanförnu farið fram samningaviðræður milli ríkisvaldsins og bænda og hafi náðst sátt um breytingar á gildandi búvörusamningum.

Helstu breytingarnar eru þessar:

  • Framlög á árinu 2009 verði samkvæmt fjárlögum.
  • Framlög ársins 2010 verði 2% hærri en 2009, óháð verðlagsþróun.
  • Árið 2011 hækki framlög aftur um 2%, en auk þess bætist við helmingur af því sem upp á vantar til að framlag ársins uppfylli ákvæði gildandi samnings. Þó verði hækkun milli ára ekki umfram 5%.
  • Árið 2012  verði greitt samkvæmt gildandi samningi, en þó með fyrirvara um 5% hámarkshækkun eins og árið 2011.
  • Allir samningarnir verði framlengdir um tvö ár, að mestu á óbreyttum forsendum.

Ráðuneytið segir, að þessi samningsniðurstaða feli í sér, að bændur geri sér grein fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi sé í ríkisfjármálum, en fyrir liggi að gæta verður mikils aðhalds á næstu árum. Bændur færi umtalsverða fórn í tvö til þrjú ár miðað við gildandi samninga en fái í staðinn framlengingu um tvö ár þegar ætla má að ástand hafi batnað. Því feli samkomulagið í sér aukið rekstraröryggi í landbúnaði til lengri tíma sem sé ekki síst mikilvægt nú með tilliti til fæðuöryggis þjóðarinnar.

Steingrímur segir, að með þessu samkomulagi sé stigið mikilvægt skref í átt til þjóðarsáttar um nauðsynlegar aðgerðir til að takast á við þá erfiðu tíma sem þjóðin gangi nú í gegnum.

Samkomulagið er undirritað með fyrirvara um nauðsynlegar lagabreytingar Alþingis og samþykki í atkvæðagreiðslu meðal bænda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert