Garðyrkjubændur skrifuðu ekki undir
Samband garðyrkjubænda ákvað á aðalfundi á föstudag að skrifa ekki undir samning við landbúnaðarráðherra um niðurskurð á greiðslum til bænda og jafnframt um framlengingu á búvörusamningum, að því er kemur fram á fréttavefnum Suðurlandinu.is.
Bændasamtök Íslands skrifuðu í dag undir breytingar á gildandi samning um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu og sauðfjárræktar. Verður stuðningur við bændur skertur á þriggja ára tímabili en samningurinn er jafnframt framlengdur um tvö ár. Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra, sagði í dag að að með þessu samkomulagi sé stigið mikilvægt skref í átt til þjóðarsáttar um nauðsynlegar aðgerðir til að takast á við þá erfiðu tíma sem þjóðin gengur nú í gegnum.
Haft er eftir Bjarna Jónssyni, framkvæmdastjóra Sambands garðyrkjubænda, á Suðurlandinu.is, að ekki geti verið um þjóðarsátt að ræða þegar ósamið sé við einn aðila af þremur. Garðyrkjubændur vilji fyrst fá afdráttarlausa yfirlýsingu um að hætt verði við fjórðungs hækkun á rafmagni sem fyrrverandi landbúnaðarráðherra ákvað.
Bjarni segir að ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, fyrrverandi ráðherra, um breytingar á niðurgreiðslu rafmagns hafi þýtt 25% hækkun á rafmagni frá 1. febrúar síðastliðnum. Í vikunni hafi garðyrkjubændur verið að fá fyrstu reikningana eftir breytingarnar og hafi þeir ekki treyst sér til að skrifa undir nýjan búvörusamning við ráðuneytið fyrr en hætt yrði við rafmagnshækkunina.
Bjarni segir þolinmæði garðyrkjumanna á þrotum en þeir fóru fram á það í
vikunni að fá afdráttarlausa yfirlýsingu um að ekki kæmi til hækkunar
rafmagnskostnaðar. Hann segir fjórðungs hækkun koma mjög illa við
garðyrkjufyrirtæki þar sem framlegð sé mjög lág.
Framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda segir að garðyrkjubændur séu tilbúnir til þjóðarsáttar um landbúnaðinn verði komið til móts við kröfur þeirra. Hann treystir á það að málið verði leyst eftir helgi.
Bloggað um fréttina
-
Gestur Guðjónsson Steingrímur J stöðvar græna stóriðju á Íslandi -
Haraldur Bjarnason Gróðurhús í stað kerskála -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Afsláttarverð -
Birgitta Jónsdóttir Kalla eftir þjóðarsátt um lægra orkuverð til bænda -
Baldvin Björgvinsson Raforku á réttu verði -
-
Sigurður Ingi Jóhannsson Ljósin slökkt. Steingrímur Joð máttlaus. -
Helga Þórðardóttir Skortverðbólga og rándýrt rafmagn. Hvað er í gangi? -
Jón Aðalsteinn Jónsson Ef ég man rétt -
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Gefum frelsi og stóriðjutaxta á raforku
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 7. maí 2009, Innlent Milljarður skorinn af bændum næstu ár
- Þriðjudagur, 21. apríl 2009, Innlent Ekki líku saman að jafna
- Miðvikudagur, 22. júlí 2009, Innlent Matjurtir merktar upprunalandi
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Segja gróðurhúsabændur sitja við sama borð og aðra
- Þriðjudagur, 3. febrúar 2009, Innlent Aðför ríkisins að íslenskri garðyrkju
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































