Lokuðu kannabisverksmiðju á ný

Frá kannabisræktun á Esjumelum á Kjalarnesi sem nýlega var lokað
Frá kannabisræktun á Esjumelum á Kjalarnesi sem nýlega var lokað Kristinn Ingvarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í einbýlishúsi í Breiðholti síðdegis á fimmtudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 300 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

„Einnig var lagt hald á 15 gróðurhúsalampa, rúmlega 300 grömm af marijúana og 2 kíló af kannabislaufum. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í tengslum við rannsókn málsins.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert