Í óleyfi á sundlaugarsvæði

Lögreglumenn komu í síðustu viku tvívegis að ungum mönnum sem höfðu farið í óleyfi, utan opnunartíma, inn á sundlaugarsvæði sundhallar Selfoss.  Í öðru tilvikinu voru tíu menn á laugarsvæðinu og fimm í hinu. 

Að sögn lögreglunnar verða mennirnir allir kærðir fyrir hegningarlagabrot með því  að fara inn á þeim óheimilan stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert