Samfylkingin svarar auglýsingu
Samfylkingin gerir athugasemd við nafnlausa auglýsingu á öftustu síðu Morgunblaðsins í gær þar sem varað var við skattahækkunum vinstrimanna, kæmust þeir til valda.
Í yfirlýsingu frá Samfylkingunni segir:
„Í Morgunblaðinu í gær, 19. apríl, birtist á bls. 63 auglýsing þar sem alvarlega er hallað réttu máli um stefnu Samfylkingarinnar í skatta- og ríkisfjármálum. Undir auglýsinguna ritar áhugahópur um endurreisn Íslands, en sá hópur er hvergi finnanlegur í skrám yfir félög né heldur á leitarvélum internetsins. Að mati Samfylkingarinnar er auglýsingin því í raun nafnlaus.
Í henni er lýst meintum áformum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í skattamálum og því ranglega haldið fram að Samfylkingin áformi umtalsverðar og margvíslegar skattahækkanir. Hið rétta er að Samfylkingin hefur ítrekað sagt að vandinn í ríkisfjármálum verði ekki leystur með skattahækkunum heldur verði megináhersla lögð á að mæta halla ríkissjóðs með aðhaldi, niðurskurði og baráttu gegn skattsvikum.
Óábyrgt sé hins vegar að útiloka með öllu skattahækkanir við þessar aðstæður, en mikilvægt er að gæta sanngirni og forðast margsköttun svo sem með auknum eignarsköttum sem Samfylkingin hefur útilokað. Forgangsatriði er að verja kjör og stöðu þeirra sem lakast standa að vígi og á það bæði við um verkefni stjórnvalda og mögulegar breytingar á skattkerfinu.
Þar sem Morgunblaðið birtir nafnlausa auglýsingu hlýtur innihald hennar að vera á ábyrgð blaðsins. Þess er því vinsamlegast farið á leit að blaðið leiðrétti rangfærslur þessarar auglýsingar með birtingu þessarar athugasemdar á áberandi stað.“
Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, undirritar bréfið.
Bloggað um fréttina
-
Andrés Magnússon Loðpeningar heilagrar Jóhönnu -
Haraldur Bjarnason Dulbúin skattahræðsluáróður íhaldsins -
Gísli Tryggvason Rétt hjá Samfylkingunni að...
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 20. apríl 2009, Innlent Tengist ekki endurreisnarhópi
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent Munu ekki una skattahækkunum sem lengja kreppuna
- Laugardagur, 22. nóvember 2008, Innlent Gætu dregið svartapétur
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Samfylking áfram stærst
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































