Torfusamtökin gagnrýna hörku lögreglu
Torfusamtökin gera athugasemd við vinnulag lögreglunnar við handtöku
hústökufólks við Vatnsstíg í sl. viku. Í yfirlýsingu samtakanna segir að það veki furðu að slíkri hörku skuli beitt gagnvart aðgerðum hóps sem
hafði það eitt að markmiði að benda á leiðir til bæta umhverfi og
samfélag í miðbænum, með því að vekja athygli á nýtingarmöguleikum
þeirra fjölmörgu eldri húsa í miðbænum sem standa auð og liggja undir
skemmdum vegna sinnuleysis eigenda sinna.
Torfusamtökin segja að hliðstæðri hörku hafi að jafnaði ekki verið beitt gagnvart ógæfumönnum sem í lengri eða skemmri tíma hafi tekið sér bólfestu í auðum húsum, enda þótt bæði nágrönnum og húseignunum sjálfum stafi mun meiri ógn af slíkum gestum.
„Skipulagsmál í eldri hverfum eru vandmeðfarin og þar takast á ólíkir hagsmunir. Sjónarmið um varðveislu menningarminja og eflingu jákvæðs mannlífs í miðbænum fara ekki alltaf saman við fjárhagslega hagsmuni þeirra sem auðu húsin eiga. Þeir hafa í mörgum tilvikum ótvíræðan hag af hrörnun þeirra, niðurrifi og nýrri uppbyggingu á lóðunum í kjölfarið. Víða í nálægum löndum er slík háttsemi húseigenda refsiverð. Frá sjónarhóli meðalhófs og jafnræðis verður lögreglan að huga að því hverra hagsmuna hún er að gæta í tilvikum sem þessum,“ segir í yfirlýsingu Torfusamtakanna.
Þá segir að ekki sé komin formleg niðurrifsheimild fyrir þetta
tiltekna hús við Vatnsstíg, en allar ákvarðanir um breytingar eða
niðurrif á húsum sem byggð eru fyrir 1918 falli undir lög um húsafriðun.
Torfusamtökin beina þeim tilmælum til lögreglunar að hún gæti að húsum sem hafa minjagildi og standi svo að málum að aðgerðir hennar valdi ekki tjóni á sögulegum minjum.
Myndasyrpa: Lögregla rýmir Vatnsstíg 4
Birtingardagur: Miðvikudaginn, 15. apríl 2009
Bloggað um fréttina
-
Emil Örn Kristjánsson Sjaldan veldur einn þá tveir deila -
Torfusamtökin Ályktun -
Heiður Helgadóttir Heyr fyrir Torfusamtökunum
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Segir lögreglumann hafa beitt harðræði
- Miðvikudagur, 26. nóvember 2008, Innlent Fáir að fara að byggja í miðbænum
- Föstudagur, 17. apríl 2009, Innlent Vilja bjarga Skuggahverfi
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Miðvikudagur, 6. maí 2009, Innlent Hópur fólks kominn inn á Vatnsstíg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































