100 félagsmenn FÍA atvinnulausir
Reuters
Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir að um eitt hundrað félagsmenn FÍA séu atvinnulausir en á sama séu á annað hundrað gerviverktakar að vinna fyrir íslenska flugrekendur á íslenskt skráðum flugvélum – eru þá ótalin erlend flugfélög sem fljúga til og frá Íslandi.
„Margir gerviverktakanna koma utan evrópska efnahagssvæðisins og fá leyfi Flugmálastjórnar Íslands (FMS) sem gefur út fullgildingar á atvinnuflugskírteinum án þess að hafa samráð við Vinnumálastofnun, Félagsmálaráðuneyti, Dómsmálaráðuneyti eða Útlendingastofnun eins og ætti að gera. FÍA hefur ritað FMS fyrirspurn um fullgildingar á atvinnuflugskírteinum þar sem fram kemur að stofnunin sé ekki að veita atvinnuleyfi inn á evrópska efnahagssvæðið heldur sé einungis verið að staðfesta hæfni einstaklinga. FÍA hefur gagnrýnt að enginn hirði um atvinnuleyfið og sent Vinnumálastofnun fyrirspurn án þess að fá svör. Gerviverktakarnir eru réttlausir og stéttlausir menn – oft í vinnu hjá áhafnaleigu sem skráð er í skattaskjóli og þar með opnast leiðir til skattaundanskota, aukinheldur sem almennar leikreglur á vinnumarkaði eru sniðgengnar," að því er segir í tilkynningu frá FÍA.
FÍA hefur gert öllum hlutaðeigandi yfirvöldum grein fyrir áhyggjum sínum og ítrekað óskað liðsinni til að farið sé eftir gildandi löggjöf.
„FÍA ritaði Tekju- og lagaskrifstofu Fjármálaráðuneytis fyrirspurn um framkvæmd og eðli skattalöggjafarinnar gagnvart flugrekendunum og verktökum dagsett 6. maí 2008. Afrit var sent Fjármálaráðherra og Ríkisskattstjóra. Í framhaldi fékk FÍA fund með þáverandi Félags- og tryggingamálaráðherra, ásamt forsvarsmönnum Vinnumálastofnunar Íslands þar sem þeim var gerð grein fyrir stöðu mála.
Tekju- og lagaskrifstofa svaraði fyrirspurn FÍA með bréfi 27. ágúst 2008. Þar kemur í stuttu máli afdráttarlaust fram að heimta beri skatta og skyldur af verktökum og að lög um starfsmannaleigur gildi um áhafnaleigur flugfélaganna. Þessu er ekki framfylgt í dag. Engin áhafnaleiga er eða hefur verið skráð hjá Vinnumálastofnun Íslands eins og lög kveða á um og í lögum er kveðið á um að ef áhafnaleiga skilar ekki opinberum gjöldum ber notendafyrirtækið (flugfélagið) fulla ábyrgð á skilunum," samkvæmt tilkynningu.
„Í framhaldi af svari Tekju- og lagaskrifstofu ritaði FÍA fyrirspurn til Vinnumálastofnunar Íslands dagsett 22. september 2008, þar sem spurt var um framkvæmd og eðli vinnulöggjafarinnar sem og um starfsmannaleigur og afstöðu stjórnvaldsins til ofangreindra mála. Engin svör bárust innan eðlilegra tímamarka og því ritaði FÍA ítrekunar bréf til Vinnumálastofnunar Íslands dagsett 4. nóvember 2008. Þá hafði Félagsmálaráðuneytið yfirtekið málið sem æðra sett stjórnvald. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir FÍA um svör þó ekki væri nema að hluta, berast enn engin svör. Því sendi FÍA Umboðsmanni Alþingis kvörtun dagsetta 16. mars 2009. Umboðsmaður Alþingis ritaði í framhaldi, bréf dagsett 19. mars 2009, til Félagsmálaráðuneytis þar sem svara er krafist hverju sæti að ekki sé búið að ljúka málinu og krefst svara eigi síðar en 2. apríl 2009. Félagsmálaráðuneytið varð ekki við kröfunni um að svara á tilsettum tíma og sótti um frest.
Umboðsmaður Alþingis veitti frest til 17. apríl 2009, en sá dagur er liðinn án þess að nokkur svör hafi borist.
FÍA hefur margsinnis bent á að úrbóta væri þörf hvað varðar gerviverktöku meðal flugfélaganna. Það er sorglegt að horfa upp á aðgerðarleysi í þessum málum á sama tíma og stjórnmálaflokkar birta slagorð um að fjölga störfum og auka skatttekjur í aðdraganda kosninga. Í því ástandi sem nú er hljótum við að spyrja hvers vegna ekkert er aðhafst því oft var þörf en nú er nauðsyn. Meginatriðið er að jafnræðis sé gætt," að því er segir í tilkynningu.



































