Sérstakt átak til að rannsaka skattalagabrot

Fjármálaráðuneytið hefur í samvinnu við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra ákveðið að hafið verði sérstakt átak til að rannsaka hugsanleg brot á skattalögum í tengslum við hrun bankanna og í aðdraganda þess.

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir, að í viðræðum fjármálaráðuneytisins við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra hafi komið fram að afar brýnt sé að hraða rannsókn hugsanlegra skattalagabrota í tengslum við fall bankanna og í starfsemi þeirra í aðdraganda fallsins, hvort sem er hjá eigendum, stjórnendum eða starfsmönnum bankanna og félaga sem þeim tengist. Í ljósi þess telji þessir aðilar æskilegt að aukinn þungi verði lagður í þetta verkefni hjá stofnunum skattsins og séu sammála um að gert verði sérstakt átak í þessum efnum í samvinnu þessara embætta.

Í framhaldi af þessu hefur því verið beint til skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra að hrinda þessu af stað og setja á laggirnar þann starfshóp sem rætt hafi verið um við embættin og að í honum starfi færustu sérfræðingar embættanna á þessu sviði.

Fjármálaráðuneytið segir, að í kjölfar hruns bankanna í október á síðastliðnu ári hafi stjórnvöld brugðist við með ýmsu móti í því  markmiði að rannsaka hvað úrskeiðis fór í aðdraganda þess og hvort einhver þau brot hafi verið framin er varði refsingu. Þannig hafi verið sett á fót rannsóknarnefnd Alþingis og embætti sérstaks saksóknara með aðkomu erlendra sérfræðinga, auk þess sem Fjármálaeftirlitið hafi verið eflt verulega.

Auk þessa verkefnis verður á næstunni í samvinnu við skattyfirvöld unnið að breytingum á starfsemi stofnana þeirra með það að markmiði að efla skatteftirlit  og skattrannsóknir einkum að því er tekur til eftirlits með skattalegum þáttum fjármálastarfsemi og alþjóðlegra viðskipta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert