Þörf á tafarlausum aðgerðum í þágu heimila

Frá aðalfundi Verkalýðsfélags Akraness.
Frá aðalfundi Verkalýðsfélags Akraness.

 Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness skorar á íslensk stjórnvöld að grípa til tafarlausra aðgerða vegna gríðarlegs vanda heimilanna.

Í ályktun fundarins sem samþykkt var í gærkvöld segir að í dag séu um 40 þúsund einstaklingar með neikvæða eiginfjárstöðu. Ljóst sé að neikvæð eiginfjárstaða heimilanna á einungis eftir að versna til muna því Seðlabankinn gerir ráð fyrir að fasteignaverð eigi eftir að falla um allt að 50% að raungildi.

Fundurinn skorar á stjórnvöld að koma í veg fyrir að einstaklingar taki þá ákvörðun að hætta að greiða af sínum skuldum sökum þess að skuldir hafi vaxið langt umfram eignir vegna þeirra hamfara sem riðið hafa yfir íslenskt efnahagslíf.

„Á þeirri forsendu skorar aðalfundurinn á stjórnvöld að grípa til róttækrar niðurfærslu og leiðréttingar á skuldum íslenskra heimila. Það er mat aðalfundarins að stór hætta sé á að einstaklingar sjái ekki hag í því að greiða sínar skuldir lengur með skelfilegum afleiðingum fyrir allt samfélagið. Einnig skorar aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness á stjórnvöld að þau finni tafarlaust lausn á vanda um 50 þúsund einstaklinga sem tekið hafa svokölluð myntkörfulán vegna bílakaupa. Fjölmargar fjölskyldur endurnýjuðu bíla sína á undangengnum þensluárum, og oftar en ekki með lánsfé sem þá var auðfengið hjá bönkum og fjármögnunarfyrirtækjum,“ segir í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert