Fréttaskýring: Safna liði til að mótmæla einkarekstri

Samningurinn verður afgreiddur úr bæjarstjórn á þriðjudag. Ástand eða staðsetning kútters Sigurfara breytist ekkert við ... stækka

Samningurinn verður afgreiddur úr bæjarstjórn á þriðjudag. Ástand eða staðsetning kútters Sigurfara breytist ekkert við það.

Morgunblaðið Eftir Rúnar Pálmason - runarp@mbl.is

Hann er vandfundinn sá safnamaður sem líst vel á áform Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar um að einkavæða rekstur Byggðasafnsins í Görðum og Listasetursins Kirkjuhvols. Raunar hafa öll samtök safnamanna og safnamenn sem hafa tjáð sig um málið gagnrýnt samningsdrögin og vinnubrögð sveitarfélaganna, þó sérstaklega að ekkert samráð var haft við Safnaráð, menntamálaráðuneytið eða aðra safnamenn. Þá eru þeir andvígir því að rekstur byggðasafna sé færður til einkaaðila.

Í fyrradag sendi Ríkisendurskoðun fyrirspurn til bæjarins út af fyrirhugðum samningi auk þess sem málið er til skoðunar í menntamálaráðuneytinu.

Um 900 manns hafa skráð sig á Facebook-síðuna Björgum byggðasafninu og minnihlutinn á Akranesi boðar til bæjarmálafundar á mánudagskvöld til að ræða málið.

Faglegar ástæður

Í Morgunblaðinu í gær sagði Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, aðspurður um gagnrýni Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar og Rakelar Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra Safnaráðs á samninginn, að „kengur“ væri milli þeirra og Adolfs Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Vætta ehf., sem taka á við rekstri safnsins.

Margrét og Rakel hafna því alfarið að um persónulegar deilur sé að ræða eins og megi ráða af orðum bæjarstjórans. „Málið snýst ekki um persónulegan ágreining, málið snýst um að það er ekki við hæfi að einkavæða rekstur safns á þennan hátt, án nokkurs samráðs við Safnaráð og menntamálaráðuneytið. Þess vegna gerum við athugasemdir,“ sagði Margrét í samtali við Morgunblaðið í gær. Margrét líkt og fleiri safnamenn sem rætt var við segja undarlegt að skilja eigi bátakost safnsins frá rekstri byggðasafnsins, líkt og áform eru um og það sé algjörlega óljóst hver muni sjá um vörslu þeirra. Varðveisla bátanna væri flóknasta og erfiðasta verkefni safnsins. Margrét sagði að margt ylli henni áhyggjum í þessu máli, s.s. hvernig skráningu safngripa og varðveislu yrði háttað, gerð sýninga og faglegt starf safnsins. Þá brjóti samningurinn gegn alþjóðlegum siðareglum safna (ICOM). Yfirlýsing um annað í samningsdrögunum sé fyrirsláttur því það liggi fyrir að safnið verði rekið af einkafyrirtæki og það eitt og sér brjóti gegn siðareglum ICOM. Þar með geti safnið ekki fengið framlög úr safnasjóði og væntanlega ekki heldur úr ríkissjóði. „Þetta er menningararfur sem varðar alla þjóðina og það er ekki við hæfi að einkavæða slíkt,“ sagði Margrét.

Það væri að auki athugavert að þetta væri gert án útboðs.

Samningurinn um rekstur safnsins og listasetursins var ekki boðinn út og sagði Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, að verkefnið væri ekki útboðsskylt. Hann hefði efasemdir um að útboð hefði skilað betri samningi. Spurður um varðveislu bátanna sagði Gísli að þeir hefðu lengi legið undir skemmdum og það væri ætlun bæjarins að koma þeim í varðveislu. Bærinn hefði hins vegar aðeins efni á að taka kútter Sigurfara í sundur og koma honum í trausta geymslu, lengra kæmist bærinn ekki að sinni.

Ekki sparnaður

Samkvæmt drögum að samningi Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar við Vætti um rekstur Byggðasafnsins að Görðum og Listasetursins Kirkjuhvoli ætlar Akranes að borga Vættum rétt um 30 milljónir króna á ári til að reka byggðasafnið. Sú upphæð fylgir vísitölu neysluverðs.

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Akraneskaupstaðar lagði bærinn safninu til tæplega 26 milljónir á árinu 2008. Við þá fjárhæð bætist rekstrarhalli og að teknu tilliti til hans eru upphæðirnar sambærilegar, að sögn Gísla S. Einarssonar. Gísli segir að fjárhagslegur ávinningur af samningnum felist í því að störfum fjölgi um 4-7 og að starfið verði mun öflugra en hingað til.

Í samningnum er kveðið á um að forvarsla og viðhald sýningargripa sé á kostnað sveitarfélaganna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Frábærar snyrtivörur á góðu verði.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem hentar þörfum allra í fjölskyldunni. Þetta er...
Vatnskassaviftur - tilboð
Tilboð á vatnskassaviftum. Úrval í stærðum frá 20 til 40 cm. Bæði 12 og 24 Volt....
Veiðin - Ormar til sölu
Nú er maðkur í mysunni, vorið komið og veiðin að hefjast! Úrvals silungsmaðk...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....