Fylgjast náið með útbreiðslu svínaflensunnar
Sóttvarnarlæknir hefur gefið út leiðbeiningar varðandi svínaflensu en undanfarin ár hefur sóttvarnalæknir í samvinnu við ríkislögreglustjóra unnið að viðbragðsáætlun við heimsfaraldri inflúensu. Fylgst er náið með útbreiðslu veirunnar hér á landi.
Svínainflúensa er bráð sýking í öndunarvegum svína af völdum inflúensu A veiru. Dánartíðnin er lág í svínum og þau ná sér venjulega á 7–10 dögum frá upphafi veikinda. Þessar veirur er einnig að finna í villtum fuglum, fiðurfé, hestum og mönnum. Svínainflúensa berst afar sjaldan milli dýrategunda. Fram til þessa hafa þrír undirflokkar inflúensu A fundist í svínum, en það eru H1N1, H1N2 og H3N2.
Sýkingar í mönnum af völdum svínainflúensu hafa af og til greinst í mönnum frá 6. áratug síðustu aldar. Þessar sýkingar hafa tengst umgengni við svín, t.d. á svínabúum. Frá árinu 1958 hafa greinst 17 slík tilfelli í Evrópu. Hópsýking varð af völdum svínainflúensu í mönnum í bandarískri herstöð í New Jersey í Bandaríkjunum árið 1976. Ekki tókst að sýna fram á tengsl við svín í því tilviki en augljóst að svínainflúensan barst manna á milli því að 200 manns veiktust, 12 lögðust á sjúkrahús og einn lést.
Hver eru einkenni svínainflúensu í mönnum?
Einkenni svínainflúensu hafa verið svipuð og einkennin af völdum árstíðarbundinnar inflúensu, sem eru skyndilegur hiti, vöðvaverkir og einkenni frá öndunarfærum. Einkenni svínainflúensunnar í Mexíkó virðast vera skæðari en annars staðar.
Hvernig smitast menn?
Oftast smitast einungis þeir einstaklingar af svínainflúensu sem eru í tengslum við svín. Af og til hefur smit borist manna á milli en það er afar sjaldgæft. Smit berst ekki með neyslu svínakjöts. Það er því óvenjulegt að svínainflúensan, sem núna gengur í Mexíkó og Bandaríkjunum, virðist smita greiðlega manna á milli.
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 20. maí 2009, Innlent Skortur á upplýsingum frá Mexíkó
- Föstudagur, 6. nóvember 2009, Innlent Grunur um svínaflensu í svínabúi í Eyjafirði
- Mánudagur, 9. nóvember 2009, Innlent Staðfest svínaflensa í svínum
- Miðvikudagur, 29. apríl 2009, Innlent Íslensk svín hafa aldrei greinst með inflúensu
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Innlent Ekki útilokað að flensan berist hingað
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































