Prestastefna hafin

Gengið var í Kópavogskirkju þar sem prestastefnan hófst.
Gengið var í Kópavogskirkju þar sem prestastefnan hófst. mbl.is/Kristinn

Prestastefna hófst í kvöld með messu í Kópavogskirkju og í kvöld mun Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, flytja yfirlitsræðu í kirkjunni. Prestar gengu fylktu liði í kirkjuna þótt veðrið væri ekki upp á það besta eða rok og rigning.

Á dagskrá prestastefnu eru tvö meginefni. Annað er umræða um stöðu samfélags og kirkju út frá umræðu í þjóðfélaginu um endurmat á öllum sviðum og nýja framtíðarsýn. Þá verður fjallað  um samþykktir um innri málefni Þjóðkirkjunnar, sem einnig voru ræddar á síðustu prestastefnu.

Prestastefnu lýkur á fimmtudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert