Þrír menn eftirlýstir

Mennirnir þrír sem lögreglan lýsir eftir.
Mennirnir þrír sem lögreglan lýsir eftir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir þremur karlmönnum, sem hafa reynt að brjótast inn í hraðbanka og verslanir undanfarna daga.  Þeir eru taldir vera um þrítugt og eru „útlendingslegir“ á að líta. 

Lögreglan hefur birt myndir af mönnunum, en myndirnar náðust með eftirlitsmyndavélum. Þeir sem telja sig þekkja mennina eða búa yfir upplýsingum um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1100.

Tilkynning lögreglunnar

Mynd af einum mannanna þriggja við iðju sína.
Mynd af einum mannanna þriggja við iðju sína.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert