Dagar Lífar taldir
Dagar hreindýrskálfsins Lífar, sem heimilisfólkið að Sléttu utan við Reyðarfjörð bjargaði í fyrravor, eru taldir. Líf drapst í gær og var banameinið hvítvöðvasýki. Húsfreyjan að Sléttu segir missinn mikinn. Trúlegt sé að röð mannlegra mistaka hafi leitt til dauða Lífar.
Líf komst í fréttirnar fyrir skömmu þegar Umhverfisstofnun gerði athugasemdir við að heimilisfólkið að Sléttu hefði tekið hana upp á sína arma. Slökkviliðsmenn í Fjarðabyggð, sem voru í sjúkraflutningum í fyrravor, sáu hreinkú sem var að burði kominn. Þegar þeir komu til baka var kýrin farin en nýborinn hreindýrskálfur lá í vegkantinum. Kálfurinn var fluttur heim að Sléttu þar sem hlúð var að honum og hann dafnaði vel.
Umhverfisstofnun hafði bent ábúendum á ákvæði laga um villt dýr og hvatt þá til að sækja um leyfi til að halda hreindýrskálfinn. Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra lét málið til sín taka og fór austur að Sléttu til að heimsækja Líf.
„Ég legg það á mig sem þarf til þess að tryggja að það finnist sú lausn í málinu að Líf fái líf,“ segir Kolbrún eftir heimsóknina austur.
Til stóð að sækja um leyfi til að Líf fengi að vera að Sléttu. Til þess kom þó ekki þar sem hún lauk sinni jarðvist í gær.
„Ég var að fá úrskurð úr krufningu, hún dó úr hvítvöðvasýki. Það er ferli sem fer af stað í vöðvum dýrsins þegar það er beitt harðræði eða skelfist. Þetta leiðir yfirleitt alltaf til dauða,“ sagði Dagbjört Briem Gísladóttir, bóndi að Sléttu í samtali við mbl.is.
Dagbjört segist ekki vilja kenna neinum um en dýralæknir frá Akureyri hafi eindregið ráðlagt að klaufar Lífar yrðu klipptar því hún sliti þeim ekki líkt og hreindýr sem lifa villt úti í náttúrunni.
„Og við fórum í það að ráði dýralæknisins. Hún varð mjög hrædd en það virtist í lagi með hana. Svo sá ég að dofnaði yfir henni og dró af henni. Við reyndum hvað við gátum en hún dó í gær. Ég er bóndi og búin að horfa á eftir hrossum og öðrum skepnum en þetta er ekki líkt því. Þetta er mikill missir fyrir mig og mér líður skelfilega. Það er sárt að horfa á eftir Líf ekki síst núna þegar grös eru tekin að grænka og sumarið handan við hornið. Ég var farin að hlakka til sumarsins með Líf,“ sagði Dagbjört.
Bloggað um fréttina
-
Rósa Aðalsteinsdóttir Klaufameðferð dýralæknis um að kenna, að Líf lést? -
Bogi Jónsson Hræddi Kolbrún lífið ur Líf ? -
Jenný Anna Baldursdóttir "Jákvæðir fordómar" - Frussssssssss -
Björn Heiðdal Samfylkingin sigrar! -
Stefán Friðrik Stefánsson Sorgleg leiðarlok hjá Líf -
Sigurlaug B. Gröndal Átti nokkuð að eiga við klaufir Lífar? -
Emil Örn Kristjánsson Afsakið orðbragðið... -
Níels A. Ársælsson. Hreyndýr á Íslandi -
Njörður Helgason Líf átti ekkert líf efir Kollu. -
Börkur Hrólfsson Árni Matt ? -
Jón Valur Jensson Klaufameðferð dýralæknis um að kenna, að Líf lézt?! -
Freyr Hólm Ketilsson Vona að dagar Borgarahreyfingarinnar verði ekki taldir... -
Hulda Elma Guðmundsdóttir Skrípaleikur og fáfræði -
Ridar T. Falls 6 orða saga #593
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Líf Lífar í höndum ráðherra
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Mun tryggja að Líf fái líf
- Miðvikudagur, 15. apríl 2009, Innlent Hóta að aflífa hreindýrskálf
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Orðalag í bréfum verður endurskoðað
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































