Íslenskur vináttusendiherra
Arnþór Helgason með orðu og heiðusskjal sem þeir Zhang Keyuan, sendiherra Kína, og Li Jianping, varaforseti Kínversku vináttusamtakanna, afhentu við athöfn í sendiráði Kína á dögunum. Á myndinni eru talið frá vinstri: Ólafur Egilsson, formaður KÍM og fv. sendiherra Íslands í Kína, Zhang Keyuan, sendiherra Kína á Íslandi, Arnþór Helgason, lengi formaður og nú varaformaður KÍM, og Li Jianping, varaforseti Kínversku vináttusamtakanna.
Arnþór Helgason, varaformaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins, KÍM, var á dögunum sæmdur titlinum vináttusendiherra við athöfn í kínverska sendiráðinu. Einungis 70 einstaklingar hafa hlotið þessa viðurkenningu sem Vináttusamtök kínversku þjóðarinnar við önnur lönd veita.
Li Jianping, varaforseti Kínversku vináttusamtakanna, sagði við það tækifæri, að Arnþór hlyti þessa viðurkenningu vegna áratuga starfs að samskiptum Íslands og Kína á sviði menningar og lista. Arnþór gekk í KÍM árið 1969 og var formaður þess í 22 ár.
Í þakkarávarpi sagði Arnþór að þessi heiður félli ekki síður í skaut KÍM og ætti sér rætur í því mikla og óeigingjarna starfi sem fjöldi fólks hefði innt af hendi á vettvangi félagsins um árabil, en það er nú rúmlega hálfrar aldar gamalt.
Aukið samstarf á sviði jarðvarmanýtingar
Við sama tækifæri lýstu Kínverjar yfir áhuga á auknu samstarfi á sviði jarðvarmanýtingar og gróðurverndar.
Fimm manna sendinefnd frá Vináttusamtökum Kínverja við erlend ríki var hér á landi dagana 21.-24. apríl sl. í boði Kínversk-íslenska menningarfélagsins, KÍM. Sendinefndin var undir forystu Li Jianping, varaforseta samtakanna.
Kínversku samtökin hafa það verkefni m.a. að koma á samvinnu sveitarfélaga í landi sínu við sveitarfélög í öðrum löndum á ýmsum hagnýtum sviðum. Beinist athygli þeirra hér einkum að jarðhitanýtingu og gróðurvernd, vegna áhuga á að efla tæknisamstarf milli landanna á þessum sviðum.
Nefndin kynnti sér sérstaklega starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur, Geysir Green Energy og Bláa lónsins, og skoðaði m.a. Hellisheiðarvirkjun. Þá átti nefndin fundi með embættismönnum og sérfræðingum bæði í landbúnaðarráðuneytinu og Landbúnaðarháskóla Íslands, þar sem fjallað var um reynsluna hér af aðgerðum til að hindra gróðureyðingu, og einnig um búfjárrækt.
Fram kom að áformuð er síðar á árinu kynnisferð fulltrúa kínverskra fyrirtækja og fjárfesta til Evrópu, til þess að kanna möguleika á samstarfi við evrópska aðila. Munu þeir m.a. koma hingað til lands og hefur KÍM verið beðið um að undirbúa heimsóknina.
Áðurnefnd vináttusamtök vinna einnig að vinabæjatengslum kínverskra borga og bæja við önnur lönd. Nú þegar eru m.a. Hafnarfjörður, Kópavogur og Fjarðarbyggð í slíkum tengslum. Áhugi er á að fjölga þeim.



































